Um 64 prósent nýrra íbúðalána í fyrra voru verðtryggð

9954417613_8888c2a1ab_z.jpg
Auglýsing

Alls voru um 64 pró­sent nýrra íbúða­lána sem tekin voru á árinu 2014 verð­tryggð.  Það er mikil breyt­ing frá árinu 2013 þegar 38 pró­sent nýrra íbúða­lána voru verð­tryggð. Þetta kemur fram í skýrslu Seðla­banka Íslands um fjár­mála­stöð­ug­leika sem birt var á mið­viku­dag.

Alls nam fjár­hæð nýrra íbúða­lána á síð­asta ári 123,3 millj­örðum króna. Þegar úið var að taka til­lit til upp­greiðslna á lánum nam hrein fjár­hæð þeirra 42,8 millj­örðum króna. Báðar töl­urnar eru nán­ast þær sömu og þær voru árið 2013.

Í skýrsl­unni segir að raun­vextir verð­tryggra lána hafi framan af ári verið lægri en á óverð­tryggðum lán­um. Það geti að ein­hverju leyti skýrt aukna eft­ir­spurn eftir verð­tryggðum lán­um. „Hins vegar hefur dregið saman með raun­vöxtum verð­tryggðra og óverð­tryggðra lána á síð­ustu mán­uðum en ekki er að sjá að það hafi slegið á eft­ir­spurn eftir verð­tryggðum lán­um. Auk þess hefur fast­eigna­verð hækkað meira en laun og ráð­stöf­un­ar­tekjur síð­ustu miss­eri og þar sem greiðslu­byrði verð­tryggðra lána er lægri í upp­hafi láns­tím­ans sækja ein­stak­lingar í verð­tryggð lán.“

Auglýsing

Í skýrsl­unni er sér­stak­lega tekið fram að vægi 40 ára verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána hafi auk­ist og sagt að það geti verið leið heim­ila til að mæta hækkun fast­eigna­verðs. Einnig sé lík­legt að auknar vin­sældir 40 ára verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána hafi stuðlað að hækkun fast­eigna­verðs þar sem svig­rúm til lán­töku verður meira með slíkum lán­um.

Fram­sókn ætl­aði að afnema verð­trygg­ingu



Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2013 kom skýrt fram að flokk­ur­inn ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lán­um. Undir þeim lið sagði: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Skip­aður verði starfs­hópur sér­fræð­inga til að und­ir­búa breyt­ingar á stjórn efna­hags­mála sam­hliða afnámi verð­trygg­ing­ar­inn­ar, meðal ann­ars til að tryggja hags­muni lán­þega gagn­vart of miklum sveiflum á vaxta­stigi óverð­tryggðra lána. Starfs­hóp­ur­inn skili nið­ur­stöðum fyrir árs­lok 2013.“

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var fjallað nokkuð mikið um verð­trygg­ingu. Þar kom meðal ann­ars fram að leið­rétta ætti verð­tryggð lán sem hefðu orðið fyrir verð­bólgu­skoti og að sam­hliða þeirri skulda­leið­rétt­ingu ætti að „breyta sem flestum verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð“.

Starf­hópur um afnám verð­trygg­ingu skil­aði af sér í fyrra og komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki ætti að afnema verð­trygg­ingu.

Vilja banna vin­sæl­ustu lánin



Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í sam­tali við Frétta­blaðið á mið­viku­dag að ekki standi til að afnema verð­trygg­inga. Þess í stað skoði rík­is­stjórnin að lengja lág­marks­tíma verð­tryggra lána í tíu ár og stytta hámarks­tíma þeirra úr 40 árum í 25 ár. Unnið sé að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og mögu­legt er að það verði lagt fram á haust­þingi.

Sam­kvæmt skýrslu Seðla­bank­ans um fjár­mála­stöð­ug­leika eru verð­tryggð lán til 40 ára, sem rík­is­stjórnin vill banna, þau lán sem eiga mestri vin­sæld­ar­aukn­ingu að fagna á meðal íslenskra íbúða­eig­enda.

Alls eru verð­tryggð hús­næð­is­lán Íslend­inga um 1.200 millj­arðar króna. Í lok síð­asta árs hóf rík­is­stjórnin að greiða hluta þeirra Íslend­inga sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009 um 80 millj­arða króna úr rík­is­sjóði vegna verð­bólgu þeirra ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None