Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir framgöngu ráðherra vegna Fiskistofu

fiskistofa_2_1.jpg
Auglýsing

Umboðs­maður Alþingis segir að yfir­lýs­ingar og bréf Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra til starfs­manna Fiski­stofu, þar sem fram komu áform um flutn­ing stofn­un­ar­innar til Akur­eyr­ar, hafi ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætti. Þetta kemur fram í áliti umboðs­manns í til­efni af kvörtun starfs­manna Fiski­stofu til emb­ætt­is­ins vegna ákvörð­unar ráð­herra um að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu. Álitið er dag­sett í dag og var til­kynnt máls­að­ilum síð­deg­is.

Umboðs­maður tekur ekki afstöðu til lög­mætis ákvörð­unar ráð­herra, og hvaða rétt­ar­á­hrif yfir­lýs­ingar og bréf hans um flutn­ing Fiski­stofu kann að hafa á hags­muni starfs­manna stofn­un­ar­inn­ar. Það sé dóm­stóla að meta.

Gagn­rýnir ráð­herra



Hins vegar segir í áliti umboðs­manns: „Með til­liti til þess eft­ir­lits sem umboðs­manni Alþingis er sam­kvæmt lögum ætlað að hafa með stjórn­sýsl­unni tel ég hins vegar til­efni til að lýsa þeirri afstöðu minni að yfir­lýs­ingar og bréf ráð­herra sem beint var til starfs­manna Fiski­stofu og þar með hvernig staðið var að upp­lýs­inga­gjöf um þetta mál gagn­vart þeim af hálfu ráð­herra, þ.á.m. um hvaða ákvörðun hafi verið tekin í raun um flutn­ing­inn, hafi ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætt­i.“

Þá  gagn­rýnir umboðs­maður sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra fyrir vinnu­brögð hans í mál­inu. „Þá er það það álit mitt að það hafi ekki sam­rýmst þeim skyldum ráð­herra sem leiða af (lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands, að láta hjá líða að fá um það ráð­gjöf innan ráðu­neyt­is­ins eða með öðrum hætti hvort gild­andi laga­heim­ildir stæðu til þess að ráð­herra gæti tekið ákvörðun um flutn­ing höf­uð­stöðva Fiski­stofu frá Hafn­ar­firði til Akur­eyrar áður en hann kynnti starfs­mönnum Fiski­stofu mál­ið.“

Auglýsing

Talar beint til for­sæt­is­ráð­herra



Þá beinir umboðs­maður til­mælum beint til Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. „Ég tel jafn­framt til­efni til þess að vekja athygli for­sæt­is­ráð­herra almennt á því að miðað við þau mál sem ég hef tekið til athug­unar að und­an­förnu virð­ist vera þörf á að huga betur að fram­kvæmd þess­arar laga­reglu innan Stjórn­ar­ráðs Íslands.“

Að lokum mælist umboðs­maður Alþingis til þess, á meðan beðið er afstöðu Alþingis til máls­ins, „að ráð­herra geri starfs­mönnum Fiski­stofu form­lega grein fyrir stöðu þess nú og hvers þeir megi vænta um fram­hald­ið. Jafn­framt mælist ég til þess að fram­vegis verði betur hugað að þeim sjón­ar­miðum sem rakin eru í álit­inu um und­ir­bún­ing mála og skyldu ráð­herra til að leita ráð­gjaf­ar.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None