Bjarni: Gríðarlega kostnaðarsamt að hækka lífeyrisgreiðslur til jafns við lægstu laun

bjarni-ben-vef.jpg
Auglýsing

Það væri gríð­ar­lega kostn­að­ar­söm aðferð að hækka líf­eyr­is­greiðslur til jafns við launa­hækk­an­ir, segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurði Bjarna um stöðu aldr­aðra, öryrkja og atvinnu­lausra í óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn á Alþingi fyrr í dag.

„Hvernig hyggst rík­is­stjórnin tryggja að aldr­aðir njóti ávinn­ings með sama hætti og nú er verið að semja um á almennum vinnu­mark­aði? Mun rík­is­stjórnin tryggja að aldr­aðir muni fara upp í 300 þús. kr. á samn­ings­tíma­bil­inu? Hvernig verður með örorku­líf­eyr­is­þega, mun rík­is­stjórnin tryggja jafn­stöðu þeirra að þessu leyti? Munu atvinnu­leys­is­bætur hækka líka með sama hætti? Hvert verður með öðrum orðum fram­lag rík­is­stjórn­ar­innar til þess að styðja við þá sem eru á neðri hluta tekju­stig­ans í þessum aðgerðum öll­u­m?“ spurði Árni Páll Bjarna.

Auglýsing


Bjarni sagði að verið væri að lækka lægsta skatt­þrepið og tryggja að ávinn­ingur af breyt­ingum á skatt­kerf­inu nái til allra. „Varð­andi bætur þá vísa ég til þess að við höfum lög­bundið ákveðið fyr­ir­komu­lag um það hvernig þær eiga að taka breyt­ingum í sam­ræmi við ýmist verð­lags- eða launa­breyt­ingar í þjóð­fé­lag­inu. Það er þá næsta verk­efni að fara yfir útfærsl­una á því,“ sagði Bjarni.



Árni Páll svar­aði að vissu­lega væri ákveðið fyr­ir­komu­lag um hvernig bætur hækki, en að við svo miklar hækk­anir lægstu launa eins og nú væri samið um þyrfti sér­staka ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar til að láta það end­ur­spegl­ast í kjörum líf­eyr­is­þega.

Hann spurði Bjarna einnig um það hvers vegna ekki væri gripið til þess að hafa per­sónu­af­slátt breyti­legan, og lækk­andi með hækk­andi tekj­um. „Sú aðgerð mundi nýt­ast mjög vel lág­tekju­fólki og mun nýt­ast líf­eyr­is­þegum með algjör­lega for­dæma­lausum hætti.

„Það er að sjálf­sögðu mikið félags­legt til­lit byggt inn í kerfið í dag með per­sónu­af­slætt­inum og því sem við stefnum á með þessum breyt­ingum að vera með tveggja þrepa kerfi. Skatt­byrðin er lang­minnst neðst og hún fer hækk­andi eftir því sem launin hækka og heldur áfram að hækka þótt launin séu komin upp í ofur­laun,“ svar­aði Bjarni.

Hann sagði að fyrr­ver­andi rík­is­stjórn hafi ekki litið svo á að bóta­flokkar jafn­giltu launa­flokk­um, það væri þá breyt­ing sem Árni Páll væri að boða. „Bætur taka breyt­ingum sam­kvæmt lög­bundnu fyr­ir­komu­lagi og ef það stendur til að gera frek­ari breyt­ingar en við höfum lög­bundið þá er það alveg rétt, þá þarf að taka sjálf­stæða sér­staka ákvörðun um það. En geta okkar til þess að gera mun betur eins og að fara með líf­eyr­is­greiðslur upp í 300 þús. kr. er að sjálf­sögðu tak­mörkuð af stöðu rík­is­fjár­mál­anna hverju sinni. Það væri gríð­ar­lega kostn­að­ar­söm aðferð sem hátt­virtur þing­maður er að boða hér.“

Árni Páll gerði þessa umræðu þeirra að umtals­efni á Face­book-­síðu sinni í dag, þar sem hann sagði að Bjarni hefði í raun verið að boða að öryrkjar, aldr­aðir og atvinnu­lausir yrðu látnir sitja eftir í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar.





Öryrkjar, aldr­aðir og atvinnu­lausir verða látnir sitja eftir í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar á vinnu­mark­aði. Þetta stað...

Posted by Árni Páll on Fri­day, May 29, 2015





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None