Djarfur leikur á vinnumarkaði - Vaxtahækkun handan við hornið

marpng-1.jpg
Auglýsing

Það ríkti gleði­leg stemmn­ing í karp­hús­inu þegar kjara­samn­ingar milli VR, Flóa­banda­lags­ins, Stétt­Vest og LÍV ann­ars vegar og Sam­taka atvinnu­lífs­ins hins vegar voru und­ir­rit­aðir skömmu fyrir þrjú í dag, en þrátt fyrir að þessum mik­il­væga áfanga hafi verið náð eru blikur á loft sé kast­ljós­inu beint að hag­spán­um. Lík­legt er að stýri­vextir muni hækka á næsta vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi, sem er í júní.

Seðla­banki Íslands spáði því að verð­bólga færi á flug, vextir myndu hækka og atvinnu­leysi aukast, ef laun yrðu hækkuð um ell­efu pró­sent, en mat þess efnis var birt í síðu Pen­inga­málum seðla­bank­ans. Sagði Þór­ar­inn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur seðla­bank­ans, að hag­kerfið gæti ekki staðið undir svo miklum launa­hækk­un­um. Svo ein­falt væri það. Samn­ing­arnir sem nú hafa verið und­ir­rit­aðir gera hins vegar ráð fyrir mun meiri hækk­un­um, einkum á lægstu laun­um, eða um ríf­lega 30 pró­sent á þriggja og hálfs árs samn­ings­tíma.

Í sam­tali við RÚV í kvöld sagði Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, að nú væri teflt á tæp­asta vað með þeim kjara­samn­ingum sem nú hefðu verið und­ir­rit­að­ir. Ólík­legt væri að öll fyr­ir­tæki gætu staðið undir þessum launa­hækk­un­um, einkum þau sem væru með þungan laun­kostnað hlut­falls­lega og lítið svig­rúm til að takast á við kostn­að­ar­hækk­an­ir.

Auglýsing

Á sjötta tím­an­um í dag sleit ríkið samn­inga­við­ræðum við BHM. Ekki hef­ur verið boðað til nýs fund­ar og seg­ir Páll Hall­­dór­s­­son, for­maður samn­inga­­nefnd­ar BHM að ekki sé lík­­­legt að nýr fund­ur verði hald­inn um helg­ina.

Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins, sagði að lok­inni und­ir­rit­un, að nú þyrftu fyr­ir­tækin að standa saman og reyna að leita leiða til þess að halda áfram að stuðla að kaup­mátt­ar­aukn­ingu og stöð­ugu verð­lagi.

Lægstu launa­taxtar hækka um 31,1 pró­sent eða kr. 64.208 á samn­ings­tím­an­um. Lág­marks­tekjur verða 300 þús­und krónur á mán­uði frá maí árið 2018.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None