Eru Finnar að undirbúa sig fyrir hernaðarátök við Rússa?

h_51927992-1.jpg
Auglýsing

Finnsk her­mála­yf­ir­völd hafa sent um 900 þús­und fyrr­ver­andi her­mönnum sem eiga sæti í vara­her­liði lands­ins bréf, þar sem þeir eru upp­lýstir um hlut­verk sitt komi til hern­að­ar­á­taka. Aðgerð finnskra stjórn­valda er talin skýr­ast af auk­inni spennu milli Rússa og nágranna­ríkja þeirra. Frétta­mið­ill­inn CNBC greinir frá mál­inu.

Þá greinir frétta­mið­ill­inn National Post frá því að fyrstu bréfin hafi verið send her­mönn­unum fyrr í þessum mán­uði, og þau síðstu hafi borist við­tak­endum á síð­ustu dög­um.

Finn­land á ekki aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) og þjóðin á ríf­lega 1,300 kíló­metra löng landa­mæri að Rúss­landi, þau lengstu í Evr­ópu fyrir utan Úkra­ínu.

Auglýsing

Mjög sjald­gæf bréf



Í bréf­unum eru vara­lið­arnir upp­lýstir um til hvaða her­fylk­inga þeir eigi að til­kynna sig til komi til átaka. „Með­fylgj­andi eru þínar per­sónu­upp­lýs­ingar og upp­lýs­ingar um hlut­verk þitt komi til hern­að­ar­átaka,“ segir í bréf­un­um, að því er heim­ildir National Post herma.

Þá segir einn finnskur vara­liði, í sam­tali við frétta­mið­il­inn: „Tíma­setn­ingin er ekki úr lausu lofti grip­in. Bréfin eru greini­lega send vegna auk­inna hern­að­ar­um­svifa Rússa. Ég hef verið í vara­her­lið­inu í fimmtán ár og þetta er í fyrsta sinn að ég fæ svona bréf. Það er mjög sjald­gæft að svona bréf séu send.“

Aukin spenna á svæð­inu



Tíma­setn­ing bréfa­send­ing­anna hefur vakið athygli, en Rússar hafa ein­angr­ast mikið á alþjóða­vett­vangi á und­an­förnum miss­erum eftir inn­limun Krím-skag­ans og aðild þeirra að hern­að­ar­á­tökum í Úkra­ínu. Þá hafa Rússar staðið fyrir umfangs­miklum hern­að­ar­æf­ingum á Eystr­ar­salti, nærri ströndum Finn­lands og ann­arra þjóða Norð­ur­-­Evr­ópu.

Her­lið Finn­lands telur 16 þús­und her­menn í dag, en þjóðin getur stækkað það umtals­vert eða upp í 285 þús­und her­menn kalli hún­ vara­liðs­sveitir til þjón­ustu.

Finnst stjórn­völd hafa neitað því að bréfa­send­ing­arnar teng­ist ört vax­andi spennu á milli þeirra og Rússa, eða ástand­inu í Úkra­ínu, og segja að ákveðið hafi verið að senda vara­lið­unum bréf fyrir tveimur árum, til að efla sam­skipti við fyrr­ver­andi her­menn sína og upp­færa skrár.

Vilja tryggja sér liðs­styrk ef til átaka kemur



National Post hefur eftir starfs­manni inn­an­rík­is­mála­stofn­unar Finn­lands að með bréfa­send­ing­unum vilji finnst stjórn­völd tryggja að þau geti kallað til 230.ooo her­menn með litlum fyr­ir­vara. „Þetta teng­ist auknum óró­leika á svæð­inu. Rússar hafa sýnt að þeir geta flutt fjölda her­manna um langar vega­lengdir á skömmum tíma. Það hafa aldrei fleiri gefið sig á tal við mig og spurt hvort ástæða sé til að hafa áhyggj­ur.“

Sov­ét­ríkin réð­ust inn í Finn­land árið 1939 og her­námu um tíu pró­sent lands­ins. Á tímum Kalda stríðs­ins héldu Finnar fast í hlut­leysi sitt, en voru engu að síður undir áhrifum stóra nágranna síns í austri.

Á síð­ustu mán­uðum hafa rúss­neskar her­flug­vélar flogið ítrekað inn fyrir finnska loft­helgi. Í apríl sleppti finnski sjó­her­inn djúp­sjáv­ar­sprengju eftir að kaf­bát­ur, sem ótt­ast var að væri rúss­neskur, sást á sigl­inu úti fyrir hafn­ar­garði Helsinki. Þá hafa Finnar styrkt tengsl sín við NATO að und­an­förnu og heitið nágranna­ríkjum sínum hern­að­ar­legu sam­starfi komi til átaka á svæð­inu.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None