Eygló Harðadóttir telur að húsnæðisfrumvörpin nái í gegn og verði hluti af lausn kjaradeilna

16828751532_f775e49c59_z.jpg
Auglýsing

Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, er enn bjart­sýn á að tvö hús­næð­is­frum­vörp henn­ar, sem setið hafa föst í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í sex vik­ur, muni koma fram, að sam­staða muni nást um þau og að frum­vörpin fái braut­ar­gengi. Hún telur einnig að frum­vörpin tvö geti orðið „mik­il­vægur hluti“ af lausn þeirrar hörðu kjara­deilu sem nú geisar á vinnu­mark­aði. Þetta kom fram í við­tali við hana í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í dag.

Hefur ekki heyrt frá Bjarna and­stöðu við frum­vörpin



Frum­vörp­in, sem snú­ast ann­ars vegar um breyt­ingar á hús­næð­is­bóta­kerf­inu og hins vegar um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga, áttu upp­haf­lega að koma fram á haust­þingi. Þegar ljóst varð að svo yrði ekki átti frum­varp um hús­næð­is­bætur að koma fram ekki síðar en 27. febr­úar og frum­varp til laga um hús­næð­is­mál, um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga, eigi síðar en 26. mars, sem var síð­asti dagur til að leggja fram mál á Alþingi. Tvö önnur frum­vörp Eyglóar um hús­næð­is­mál, frum­varp um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög og um breyt­ingar á húsa­leigu­lög­um, áttu einnig að vera komin fram fyrir þennan frest en það náð­ist ekki. Þau frum­vörp eru komin inn í þingið með afbrigðum og umræða um húsa­leigu­lög hófst í lok síð­asta mán­að­ar.

Nú eru ein­ungis níu þingdagar eftir og tím­inn til að leggja fram frum­vörp með afbrigðum orðin ansi knapp­ur. Eygló sagði á Sprengisandi að það hafi tekið tvö ár að vinna frum­vörp­in. Þegar hún hafi tekið við lyklunum í ráðu­neyt­inu, sem Sam­fylk­ingin hefði stýrt í mörg ár á und­an, hafi ekki einu sinni verið til drög að frum­vörpum um breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu. Hún sagði ekk­ert óeðli­legt að það taki fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sex vikur að meta og reikna út hver áhrifin af frum­vörp­un­um. Hún hafi ekki heyrt frá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að and­staða væri við frum­vörpin innan ráðu­neytis hans.

Orku­bit­arnir virk­uðu ekki



Líkt og áður sagði eru um sex vikur síðan að frum­vörpin tvö voru send til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í kostn­að­ar­mat. Upp­haf­lega var von­að­ist Eygló til þess að því mati myndi ljúka skömmu eftir páska en af því varð ekki. Þann 7. apríl síð­ast­lið­inn sendi hún starfs­fólki fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins kveðju á Face­book. Með kveðj­unni, sem var sett fram í korti, fylgdi haugur af orku­bit­um.

 

Auglýsing

eyglofacebook

Í kort­inu var starfs­fólk á skrif­stofu opin­berra fjár­mála hvatt til að klára kostn­að­ar­mat á frum­vörpum hennar um upp­bygg­ingu félags­legs leigu­hús­næðis og um aukin hús­næð­is­stuðn­ing fyrir leigj­end­ur. „Von­andi munu þessir orku­bitar hjálpa ykkur við að meta áhrifin á rík­is­sjóð og þjóð­ar­bú­skap­inn að hjálpa þeim allra fátæk­ustu að fá öruggt húsa­skjól“. Þessi hvatn­ing virð­ist ekki hafa skilað miklu því í dag, rúmum mán­uði síð­ar, er mati á kostn­aði frum­varpana enn ekki lok­ið.

Mik­il­vægt inn­legg í kjara­deilur



Í við­tal­inu við Sprengisand sagði Eygló að frum­vörp hennar gætu orðið mik­il­vægt inn­legg í þær hörðu kjara­deilur sem nú geisa á vinnu­mark­aði. „Ég held að þau geti verið mjög mik­il­vægur hluti af lausn­inn­i,“ sagði Eygló.

Hún greindi einnig frá því að rík­is­stjórnin hefði átt í sam­ráði og sam­tali við deilu­að­ila þar sem mögu­legar skatt­kerf­is­breyt­ingar og breyt­ingar á hús­næð­is­málum hafi verið kynntar fyrir þeim sem inn­legg í kjara­deil­urn­ar. Hins vegar hafi ekki verið lagt fram neitt form­legt til­boð.

Ekk­ert hafi verið rætt um það að setja lög á verk­föll innan rík­is­stjórn­ar­inn­ar, að sögn Eygló­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None