Forsætisráherra sakar suma forystumenn verkalýðshreyfingarinnar um að stunda pólitík

10054150805_0c00abdeec_z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, sakar ein­staka for­ystu­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að stunda póli­tík á kostnað umbjóð­enda sinna í yfir­stand­andi kjara­deil­um. Þetta kom fram í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag. Sumir verka­lýðs­for­ingjar geri allt hvað þeir geti til gera rík­is­stjórn­inn sem erf­ið­ast fyr­ir.

Aðspurður um hvort honum finn­ist yfir­stand­andi verk­falls­að­gerðir vera póli­tískar, og hvort verka­lýðs­hreyf­ingin væri her­skárri nú en í tíð fyrri rík­i­s­tjórn­ar, sagði for­sæt­is­ráð­herra svo vera.

„Tví­mæla­laust. Mér finnst þetta vera óvenju póli­tískar vinnu­deilur núna, og ég held ég sé ekki einn um það. Ekki af hálfu laun­þeg­anna heldur af hálfu margra for­ystu­manna laun­þega­hreyf­ing­ar­inn­ar. Sem að mínu mati ganga sumir hverjir allt of langt í því að nota stöðu sína sem trún­að­ar­menn þess­ara félaga í póli­tískum til­gangi. Það er að segja í bar­áttu við stjórn­völd á nýjum víg­velli, ef svo má segja, haf­andi talið sig hafa farið hall­oka í kosn­ing­um. Það sem er sér­stak­lega slæmt við þetta er að með því eru þeir hugs­an­lega að fórna hags­munum umbjóð­enda sinna, ef þeir ganga það langt að við missum verð­bólg­una hér á fullt og kjörin rýrna á sama tíma og lánin hækka, það væri býsna dýr póli­tísk aðgerð.“

Auglýsing

Margir þeirra vilja koma rík­i­s­tjórn­inni frá



Aðspurður um hvort um póli­tískar aðgerðir væri að ræða til að koma rík­is­stjórn hans frá völd­um, svar­aði Sig­mundur Dav­íð: „Ef­laust langar þá marga til að koma rík­is­stjórn­inni frá, það er svo sem ekk­ert laun­ung­ar­mál. En hins vegar bitnar verð­bólgan ekki verst á rík­inu. Ríkið getur mjög fljótt lagað sig að verð­bólgu og verð­bólga jafn­vel aukið hag­vöxt og aukið tekjur rík­is­ins ef menn grípa til ráð­staf­ana til að hafa tekjur af verð­bólg­unni, þannig að ríkið mun spjara sig. En það eru helst umbjóð­endur þess­ara for­ystu­manna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem myndu bíða skaða af, sem væri svo gríð­ar­lega mikil synd því núna er ein­stakt tæki­færi til að halda áfram að auka raun­veru­legan kaup­mátt á Íslandi, bæta kjörin og bæta sér­stak­lega kjörin hjá lægri og milli­tekju­hóp­un­um. Von­andi ná menn nú saman um það að skipta þessum ávinn­ingi á sann­gjarnan hátt þannig að við getum stjórn­völd bætt í, haldið áfram að stuðla að auknum jöfn­uði og nýtt öll þessi jákvæðu vopn sem stjórn­völd hafa inn í þessa stöð­u.“

Aðspurður um hvort honum finn­ist verka­lýðs­for­ystan óvenju óbil­gjörn um þessar mund­ir, og hvort hann teldi hana vera að reyna að gera rík­is­stjórn hans sem erf­ið­ast fyr­ir, svar­aði for­sæt­is­ráð­herra: „Mér finnst sumir af for­ystu­mönnum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar tala með þeim hætti já, þegar þeir fara í það að rök­styðja aðgerðir sínar fyrst og fremst með vísan í póli­tík og óánægju með póli­tíska stefnu og þar fram eftir göt­un­um. Eða bara ein­fald­lega óánægju með það að til­teknir flokkar séu við völd.“

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None