Forseti ASÍ segir forsætisráðherra torvelda gerð kjarasamninga með ásökunum og hótunum

A121425-1.jpg
Auglýsing

Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), segir Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, tor­velda gerð kjara­samn­inga með ásök­unum í garð verka­lýðs­for­yst­unnar og hót­unum um skatta­hækk­anir sem hann hafi við­haft í við­tali í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag.

Í áður­nefndu útvarps­við­tali sak­aði for­sæt­is­ráð­herra „marga“ ­for­ystu­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að stunda póli­tík í yfir­stand­andi kjara­deilum á kostnað umbjóð­enda sinna. Að þeir gerðu allt hvað þeir geti til að gera rík­is­stjórn­inni sem erf­ið­ast fyr­ir.

Rikis­stjórnin beri sjálf ábyrgð á stöð­unni



For­seti ASÍ segir þetta af og frá. „Hins vegar hefur rík­is­stjórnin valið sér það hlut­skipti að standa vörð um efna­meiri fjöl­skyldur og fyr­ir­tæki í land­inu. Við þekkjum þetta með auð­legð­ar­skatt­inn og skatta­lækk­un­ina á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­in, sem eru að skila millj­arða hagn­aði á hverju ári, og það hefur valdið mik­illi reiði í land­inu. Þeirri kröfu hefur verið beint að verka­lýðs­hreyf­ing­unni að hún krefj­ist rétt­lætis og jöfn­uðar og það kemur greini­lega eitt­hvað við kaunin á for­sæt­is­ráð­herra að við séum að krefj­ast þess að hér rík­i eitt­hvað rétt­læt­i,“ segir Gylfi Arn­björns­son í sam­tali við Kjarn­ann.

For­sæt­is­ráð­herra sagði sömu­leiðis í útvarps­við­tal­inu á Bylgj­unni að til greina komi að hækka skatta á almenn­ing og fyr­ir­tæki í land­inu, ef veru­legar launa­hækk­anir kynda undir þenslu og verð­bólgu. Það sé ein þeirra fáu aðgerða sem stjórn­völd geti gripið til til að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika.

Auglýsing

For­seti ASÍ minnir í þessu sam­bandi á að samn­ingar sem ríkið stóð að á síð­asta ári, til að mynda við lækna, hafi leitt til þeirrar ólgu sem nú ríki á vinnu­mark­að­i. „Við skulum ekki gleyma því að bæði fjár­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra, og hvernig sá síð­ar­nefnd­i hvatti til samn­inga við lækn­ana, geta ekki firrt sig þeirri ábyrgð á því ástandi sem er hérna. En það heyrir algjör­lega til nýmæla að for­sæt­is­ráð­herra, í þeirri alvar­legu stöðu sem nú er, það eru tug­þús­undir manna að fara í verk­fall eftir tvo virka daga, að hann skuli velja sér tíma­punkt­inn til þess að fara fram með þessa vit­leysu, að hóta fólki skatta­hækk­unum ef það fær rétt­mætar launa­hækk­an­ir. Það er eins og for­sæt­is­ráð­herra vilji ögra fólki til að fara í verk­fall.“

Munu krefj­ast sér­á­kvæðis ef til stendur að hækka skatta



For­seti ASÍ segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi tor­veldað gerð kjara­samn­inga með ummælum sínum í dag. „Það liggur í augum uppi að verka­lýðs­hreyf­ingin verður að bregð­ast við þessum hót­unum um skatta­hækk­anir með þeim hætti að krefj­ast þess að í for­sendu­á­kvæði kjara­samn­inga verði sett inn ákvæði um það að ef rík­is­stjórnin hækki skatta á launa­fólk þá verði samn­ingar laus­ir,“ segir Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, í sam­tali við Kjarn­ann.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None