Fyrirtækin að meta áhrifin - Veðjað á uppgang

peningar_opt.jpg
Auglýsing

Kjara­samn­ing­arnir sem und­ir­rit­aðir voru skömmu fyrir þrjú á föstu­dag, í karp­hús­inu, eftir átaka­miklar við­ræður mán­uðum sam­an, fela í sér stórt og mikið veð­mál um að miklir upp­gangs­tímar séu framundan í íslensku efna­hags­lífi. Um það er við­mæl­endur Kjarn­ans sam­mála, en fyr­ir­tækin eru sum hver þegar byrjuð að greina áhrif­in. Bjart­sýni ríkir þó um að fyr­ir­tæki mun nú taka höndum saman um að reyna að vernda kaup­mátt, og fá hjól atvinnu­lífs­ins til að snú­ast hrað­ar. Þor­steinn Víglunds­son, fram­væmda­stjóri SA, segir að það sem mestu skipti sé að vernda kaup­mátt­inn og þann árangur sem náðst hefur að und­an­förnu.

Samn­inga­­nefnd­ir Fló­a­­banda­lags­ins, Stétt­Vest, Starfs­­greina­­sam­­bands­ins, VR og Land­­sam­­bands ís­­lenskra versl­un­­ar­­manna und­ir­­rit­uðu kjara­­samn­ing­ana við SA.

Skrifað verður und­ir þrjá mis­­mun­andi samn­inga, kjara­­samn­inga VR og LÍV, kjara­­samn­inga SGS og kjara­­samn­inga Fló­a­­banda­lags­ins.

Auglýsing

Samn­ing­arnir ná til meira en 65 þús­und vinn­andi ein­stak­linga. Lægstu launa­taxtar VR hækka um 31,1% eða kr. 64.208 á samn­ings­tím­an­um. Lág­marks­tekjur verða 300 þús­und krónur á mán­uði frá maí árið 2018, en for­sendur fyrir samn­ingnum eru meðal ann­ars að hann verði stefnu­mark­andi fyrir aðra kjara­samn­inga­gerð á vinnu­mark­aði og að kaup­máttur auk­ist. Ekki sér til lands í deilum rík­is­ins og BHM, en við­ræðum hef­ur  nú verið slit­ið. Verk­falls­að­gerðir hjá BHM halda því áfram, og hjá rúm­lega tvö þús­und starf­andi hjúkr­un­ar­fræð­ing­um, en eins og for­sendur kjara­samn­ing­ana benda til þá vilja stjórn­völd að nýgerður kjara­samn­ingur á almennum vinnu­mark­aði verði leið­ar­stefið í við­ræðum við BHM. Þetta sættir samn­inga­nefnd BHM sig ekki við og vill öðru fremur að aukin menntun verði metin til hærri launa.

kjara

 

Verða að tala var­lega



Kristín Frið­geirs­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Haga, sagð­ist í sam­tali við Kjarn­ann í gær ekki geta tjáð sig um hvernig kjara­samn­ing­arnir horfðu við henni, og hvaða áhrif þeir kynnu að hafa á rekstur og verð­lagn­ingu hjá Hög­um, sem rekur með­al  ann­ars Bónus og Hag­kaup. Ástæðan er sú að Hagar er skráð á mark­að, og því þurfi að tala var­lega um þessi mál. Jafn­framt sagði hún að stjórn og stjórn­endur Haga hefðu gert ráð fyrir hóf­legum launa­hækk­un­um, en nú tæki við að meta áhrif samn­ing­ana á rekst­ur­inn.

Upp­gangur for­senda þess að þetta gangi upp



For­sendan fyrir því að „hlut­irnir gangi upp“ eins og einn við­mæl­enda komst að orði, er að launa­hækk­an­irnar leiði ekki til þess að verð­bólgu­draug­ur­inn fari á stjá og vextir hækki það mik­ið, að allir hópi tapi. Til þess að þett geti orðið raunin þurfi upp­gangs­tímar að taka við í hag­kerf­inu, sem stuðli að auknum kaup­mætti. Eins og stjórn­endur Seðla­banka Íslands hafa ítrekað bent á, ekki síst Þór­ar­inn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ingur og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, þá er djarf­lega teflt með þessum kjara­samn­ingum þar sem ekki er víst að hag­kerfið muni standa undir launa­hækk­unum til lengdar lit­ið, ef ekki kemur til umtals­verð fram­leiðni­aukn­ing frá því sem nú er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None