Húsnæðisfrumvarp var dregið til baka í lok apríl og ólíklegt að annað komi fram á vorþingi

16828751532_f775e49c59_z.jpg
Auglýsing

Frum­varp Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, um stofn­styrki til félags­legra leigu­í­búða var dregið til baka í lok apríl síð­ast­lið­ins og hefur síðan verið í skoðun að setja fram nýtt frum­varp um málið með tals­vert breyttri útfærslu.

Þó er ósenni­legt að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi á þessu þing­i. Þetta kemur fram í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­spurn til ráðu­neyt­is­ins vegna þeirra tveggja frum­varpa Eyglóar sem hafa verið í kostn­að­ar­mati hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu und­an­farnar sjö vik­ur. Ann­ars vegar var um að ræða frum­varp um stofn­styrki til félags­legra leigu­í­búða og hins vegar frum­varp um breytt húsa­leigu­bóta­kerfi, þannig að hús­næð­is­bætur séu greiddar til fólks úr sama kerfi óháð því hvort það leigir eða á hús­næði. Kostn­að­ar­grein­ingar úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu hefur verið beðið um tals­vert skeið, enda hefur Eygló Harð­ar­dóttir talað um að það verði að klára hús­næð­is­málin á þessu þingi og jafn­vel halda sum­ar­þing til þess að klára þau. Hún hefur líka sagt að málin geti verið inn­legg inn í kjara­deil­ur.

Auglýsing

Engin nið­ur­staða um breyt­ingar á kerf­inu



Í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans kemur fram að við frum­grein­ingu á frum­varp­inu hafi vaknað marg­vís­leg álita­efni sem tekin hafi verið til skoð­unar og gerðar fyr­ir­spurnir um til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. „Á því stigi féll vel­ferð­ar­ráðu­neytið frá því undir lok apríl síð­ast­lið­inn að leggja fram það frum­varp í þeirri mynd og hefur síðan haft til skoð­unar að setja fram annað frum­varp um mál­efnið með tals­vert breyttri útfærslu,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. Í kjöl­far þess að frum­varpið var dregið til baka seg­ist fjár­mála­ráðu­neytið hafa greint vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu frá því að til að fá umsögn um breytt frum­varp frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu þyrfti að senda inn nýtt erindi þess efn­is.

Þá segir fjár­mála­ráðu­neytið að mál­efni félags­legra leigu­í­búða séu til umfjöll­unar í sam­ráðs­nefnd um hús­næð­is­mál, „og liggur ekki fyrir nið­ur­staða að svo stöddu um hvort eða hvernig breyt­ingar stjórn­völd kunna að gera á fyr­ir­komu­lagi þeirra mála. Þótt vera megi að sett verði fram stefnumið um mála­flokk­inn á næst­unni má telja ósenni­legt úr því sem komið er að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi um þennan mála­flokk ásamt umsögn um fjár­hags­á­hrif til fram­lagn­ingar á vor­þing­in­u.“

Hitt frum­varpið klárað­ist í gær



Hitt frum­varpið sem hefur verið til umsagnar í fjár­mála­ráðu­neyt­inu varðar breytt kerfi húsa­leigu­bóta. Í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að vinnsla á þeirri umsögn hafi tekið nokkurn tíma, „m.a. þar sem skorti mjög á talna­legar grein­ingar á grund­velli og áhrifum frum­varps­ins sem þurfti því að vinna fyrir umsögn­ina. Af þeirri ástæðu hefur sú umsögn orðið óvenju umfangs­mikil sam­an­tekt.“ Sú umsögn var þó til­búin og send til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í gær, og er nú til skoð­unar þar. „Næsta skref varð­andi það frum­varp er þá vænt­an­lega að þau mál­efni verði tekin til umræðu í rík­is­stjórn.“

Nýbúin að segj­ast bjart­sýn á að málin komi fram



Sem fyrr segir hefur Eygló Harð­ar­dóttir tjáð sig mikið um hús­næð­is­frum­vörpin öll, en tvö frum­vörp hennar til við­bótar voru lengi í vinnslu og voru að lokum tekin inn í þingið með afbrigðum eftir að frestur til að leggja fram mál á vor­þingi var lið­inn.

Eygló tjáði sig síð­ast um þessi mál í útvarps­þætt­inum Sprengisandi um helg­ina. Þá sagð­ist hún bjart­sýn á það að frum­vörpin tvö myndu koma fram, að sam­staða muni nást um þau og að þau hljóti braut­ar­gengi í þing­inu. Hún sagði líka að frum­vörpin tvö gætu orðið mik­il­vægur hluti af lausn þeirra hörðu kjara­deilna sem nú geisa á vinnu­mark­aði. „Ég held að þau geti verið mjög mik­il­vægur hluti af lausn­inn­i,“ sagði Eygló um helg­ina. Þá var hins vegar búið að draga annað frum­varpið til baka úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None