Ólafur Ólafsson fer formlega fram á endurupptöku á Al Thani-málinu

olafur_13.jpg
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son, sem hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða fyrr á þessu ári fyrir mark­aðs­mis­notk­un, hefur óskað eftir því við end­ur­upp­töku­nefnd að málið verði tekið til með­ferðar og dóms­upp­sögu að nýju hvað hann varð­ar. Helsta ástæðan fyrir beiðn­inni er sú að í dómi Hæsta­réttar voru sönn­un­ar­gögn í mál­inu rang­lega met­in, að mati Ólafs. Í til­kynn­ingu frá­ Þórólfi Jóns­syn­i, lög­manni Ólafs, segir að þetta atriði hafi haft veiga­mikil áhrif á nið­ur­stöðu dóms­ins.

Í til­kynn­ing­unni seg­ir: "Að mati Ólafs lagði Hæsti­réttur rangt mat á sím­tal tveggja manna, þar sem annar vísar til sam­tals við ótil­greindan mann sem kall­aður var „Óli“, um til­tekna þætti við­skipt­anna sem málið tók til. Í vitn­is­burðum fyrir hér­aðs­dómi og öðrum sönn­un­ar­gögnum máls­ins kemur skýrt fram að þarna var átt við Ólaf Arin­björn Sig­urðs­son lög­mann. Þrátt fyrir þessa stað­reynd telur Hæsti­réttur að vísað hafi verið til Ólafs Ólafs­son­ar.

Um grund­vall­ar­at­riði er að ræða. Af umræddu sím­tali er sú ranga ályktun dregin að Ólafur Ólafs­son hafi verið upp­lýstur um til­tekna þætti við­skipt­anna, þrátt fyrir að fyr­ir­liggj­andi gögn sýni ann­að. Ekk­ert annað í mál­inu sýnir fram á meinta vit­neskju Ólafs um þessi atriði. Þessi ranga for­senda er horn­steinn­inn að sak­fell­ingu Ólafs í dómi Hæsta­réttar sem telur að á grunni sím­tals­ins sé hafið yfir skyn­sam­legan vafa að Ólafur Ólafs­son skyldi njóta arðs til jafns við Al Thani.

Auglýsing

Verj­endur höfðu ekki tæki­færi til þess að leið­rétta þessi mis­tök Hæsta­réttar því sím­talið var ekki tekið til efn­is­legrar með­ferðar í mál­flutn­ingn­um, fyr­ir­liggj­andi gögn bentu ekki til þess að vafi ríkti um þetta atriði og ekk­ert gaf til kynna að dóm­ar­arnir skildu efni sím­tals­ins með öðrum hætti en hér­aðs­dóm­ur, ákæru­vald, verj­endur og ákærðu.

Það er grund­vall­ar­at­riði þegar ein­stak­lingur er dæmdur í fang­elsi að það sé gert á réttum for­sendum og for­svar­an­legu mati á gögnum máls­ins. Það var ekki raunin í þessu máli, a.m.k. hvað þetta varð­ar, og er því beiðst end­ur­upp­töku máls­ins."

Eig­in­konan skrif­aði grein



End­ur­upp­töku­beiðnin hefur átt sér nokkurn aðdrag­anda. Ingi­björg Krist­jáns­dótt­ir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­son­ar, skrif­aði grein í Frétta­blaðið í byrjun apríl þar sem hún sagði að eig­in­maður sinn hafi verið dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða á grund­velli mis­skiln­ings.

Í grein­inni segir að í upp­hafs­for­sendur dóms­ins vísi Hæstiréttir til sím­tals í gögnum máls­ins þar sem ítrekað komi fram að rætt hafi verið við „Óla“ um nákvæma útfærslu við­skipt­anna. „Hæsti­réttur fer manna­villt í rök­stuðn­ingi sínum og ályktar að hér sé átt við eig­in­mann minn, Ólaf Ólafs­son, en hið rétta er að um er að ræða lög­fræð­ing með sama for­nafni sem er sér­fræð­ingur í lögum um kaup­hall­ar­við­skipt­i,“ segir Ingi­björg í grein sinni. Hún full­yrðir að bæði ákæru­valdið og hér­aðs­dómur hafi áttað sig á því að umrætt sím­tal var ekki við Ólaf, eig­in­mann henn­ar.

Ingi­björg telur þennan mis­skiln­ing vera grafal­var­legan þar sem Hæsti­réttur dragi, að hennar mati, mjög víð­tækar álykt­anir af sam­tal­inu strax í upp­hafi dóms síns.

Mis­skiln­ingur að um mis­skiln­ing sé að ræða



Björn Þor­valds­son, sem sótti Al Than­i-­málið fyrir hönd emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, sagði það hins veg­ar mis­skiln­ing hjá Ingi­björgu  að eig­in­maður hennar hafi verið dæmdur í fang­elsi á grund­velli mis­skiln­ings.

Það sé alveg skýrt að í því sím­tali þar sem rætt hafi verið um „Óla“ sem Hæsti­réttur fjallar um sé verið að ræða Ólaf Ólafs­son, ekki lög­fræð­ing með sama for­nafni sem sé sér­fræð­ingur í kaup­hall­ar­við­skipt­um.   „Ég held að þetta sé mis­skiln­ingur hjá henni. Hún vitnar þarna í sím­tal sem á sér stað og getið er í dómn­um. Bæði í ljósi þess sem fram kemur í sím­tal­inu og sam­heng­is­ins þá er í fyrsta lagi alveg klárt mál að það er verið að tala um Ólaf Ólafs­son í þessu sím­tali. Í öðru lagi, sem kemur í ljós fyrir öllum sem lesa dóminn, þá eru fullt af öðrum gögn­um, tölvu­póstar og fram­burðir og ann­að, sem benda til aðkomu Ólafs. Þannig að ef þessu sím­tali yrði kippt út yrði hann sak­felldur eftir sem áður," sagði Björn í sam­tali við Kjarn­ann í síð­asta mán­uði.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None