Opið bréf til Páls Jóhanns Pálssonar þingmanns

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
mynd-2.jpg
Auglýsing

Kæri Páll. Ég hef lengi verið hugsi yfir orðum þínum sem þú lést falla sum­arið 2013 á Alþingi, þá nýkom­inn á þing fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn: ,,Varð­andi mig og hags­muna­tengsl­in, ég hef bara talið mig ver­a ­full­trúa útgerð­ar­inn­ar hérna og hef ekk­ert farið leynt með það.“

Þó margt megi segja um störf Alþingis er þetta að mínu mati alger­lega and­stætt þeirri hugsun sem verið hefur við lýði hér á landi að þing­menn vinni í þágu almanna­hags­muna, en ekki sér­hags­muna. Þú slærð sem sagt alveg nýjan tón með þessum grímu­lausu orðum þín­um. Og orð þín eru ekki til þess fallin að auka traust gagn­vart Alþingi, sem er í sögu­legu lág­marki og hefur verið lengi, en það er eitt mik­il­væg­asta verk­efni íslensks sam­fé­lags að end­ur­vinna einmitt þetta traust.

Miðað við orð þín get ég því ekki litið á þig sem full­trúa almenn­ings og almanna­hags­muna. Það þykir mér slæmt.

Auglýsing

Helsta og veiga­mesta hlut­verk Alþingis er að setja lög. Þessum lögum er okkur lands­mönnum ætlað að fara eftir og til þess að auka lík­urnar á að farið sé eftir þeim lögum verður traust að vera til staðar gagn­vart þing­inu.

Miðað við orð þín get ég því ekki litið á þig sem full­trúa almenn­ings og almanna­hags­muna. Það þykir mér slæmt. Þar að auki þiggur þú, sem þing­mað­ur, laun frá almenn­ingi, en varla hefur þessi sami „al­menn­ing­ur“ hugsað sér að borga þér laun til þess að vinna að hags­munum útgerð­ar­innar í land­inu? Til að vinna hags­munum sínum fram­göngu hafa útgerð­ar­menn SFS (fyrrum LÍÚ) til þess að gera það. Er það þá ekki rétt stað­ur­inn fyrir þig Páll?

En mér blöskr­aði ennþá meira þegar þú lýstir því yfir að þú værir ekki van­hæf­ur, sem full­trúi í Atvinnu­vega­nefnd Alþing­is, til þess að fjalla um mál­efni fyr­ir­tæk­is, sem til stendur að fái mak­ríl­kvóta sem nemur tugum millj­óna króna. Sú stað­reynd að eig­in­kona þín reki fyr­ir­tækið breytir því ekki að um mjög beina hags­muni er að ræða. Mál fyr­ir­tæk­is­ins hljóta að koma upp í dag­legum sam­skiptum ykk­ar, til dæmis við kvöld­verð­ar­borð­ið.

Skora ég því á þig að víkja sæti og láta öðrum þing­manni starfið eft­ir, sem hyggst vinna að almanna­hags­mun­um, á kaupi frá almenningi.

Einnig skiptir það í raun engu máli þó þú hafir sagt að þú ætlir ekki að greiða atkvæði, því komi til atkvæða­greiðslu um þetta mál er næsta víst að það fari í gegn vegna þing­meiri­hluta Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks, sem er 38 þing­menn af 63. Einnig má benda á að sam­kvæmt hags­muna­skrá á vef Alþingis ert þú ennþá skráður fyrir 5 pró­senta hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Vísi í Grinda­vík. Má þá ekki segja að þú sért líka að vinna að þínum eigin hags­munum sem þing­mað­ur?

Yfir­lýs­ing þín um að þú sért full­trúi útgerð­ar­innar á Alþingi Íslend­inga gerir þig að mínu mati van­hæfan til setu á Alþingi Íslend­inga. Skora ég því á þig að víkja sæti og láta öðrum þing­manni starfið eft­ir, sem hyggst vinna að almanna­hags­mun­um, á kaupi frá almenn­ingi.

Þeir sem eru sam­mála mér um þetta geta svo skráð sig í und­ir­skrifta­söfnun þar sem áður­nefnd áskorun birt­ist. Almenn­ingur verður að geta treyst því að þing­menn séu að störfum í þágu allrar þjóð­ar­inn­ar, en ekki ein­stakra sér­hags­muna.

Höf­undur er stjórn­mála­fræð­ing­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None