Píratar langstærstir samkvæmt nýrri könnun

Auglýsing

Píratar mæl­ast með 32 pró­senta fylgi í nýrri skoð­ana­könnun MMR. Flokk­ur­inn mælist langstærst­ur, með um tíu pró­sentum meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem mælist með 22 pró­sent.

Aðrir flokkar eru með um og undir tíu pró­senta fylgi sam­kvæmt könn­un­inni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,8 pró­senta fylgi eins og Vinstri græn, Sam­fylk­ingin mælist með 10,7 pró­sent og Björt fram­tíð 8,3 pró­sent.

Auglýsing


Í síð­ustu könnun MMR, sem lauk í byrjun apr­íl, mæld­ust Píratar með 27,4 pró­sent. Þá mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 22,9 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 13,1. VG mæld­ust síð­ast með 9,8 pró­sent og bæta því við sig. Sam­fylk­ingin fer úr 11,4 í 10,7 og Björt fram­tíð mæld­ist með 10,3 pró­sent í síð­ustu könnun en 8,3 pró­sent nú.

Vik­mörk í könnun sem þess­ari eru allt að 3,1 pró­sent. 1001 ein­stak­lingur var spurður í könn­un­inni, sem var fram­kvæmd dag­ana 16. til 21. apr­íl.

Óánægju­fylgið til Pírata



Fyrir helgi birt­ist nýr Þjóð­ar­púls Gallup þar sem Píratar mæld­ust einnig stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn, með rúm­lega 30 pró­senta fylgi. 30 pró­senta fylgi eins og flokk­ur­inn mælist nú með er sexfalt meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um.

Þar mæld­ist fylgi vinstri grænna 10,6 pró­sent og hækk­aði örlítið milli kann­anna, en aðrir flokkar á þingi misstu fylgi á sama tíma. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist í þjóð­ar­púls­in­um ­með minnsta fylgi á kjör­tíma­bil­inu eða 22,9 pró­sent, og tap­aði 2,1 pró­sentu­stigi, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mæld­ist með 10,1 pró­sent og tap­aði 0,7 pró­sent­um, Sam­fylk­ingin tap­aði 1,7 pró­sentum á milli kann­anna og mæld­ist með 14,1 pró­sent, tals­vert meira en í könnun MMR. Þá hélt fylgi Bjartrar fram­tíðar áfram að minn­ka, en flokk­ur­inn mæld­ist með 7,8 pró­sent og tap­aði 3,1 pró­sentu­stigi á milli kann­anna Gallup. Björt fram­tíð hefur tapað um tveimur fimmtu af sínu fylgi á tveimur mán­uðum og mæld­ist með minnsta fylgi sem mælst hefur við flokk­inn á kjör­tíma­bil­inu í þjóð­ar­púls­in­um.

„Fljótt á litið lítur þetta út eins og óánægju­fylgi. Þetta er sams­konar fyr­ir­brigði og við höfum séð oft áður, að ein­hver stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn rýkur upp og það hefur ekk­ert endi­lega með hug­mynda­fræði flokks­ins að gera. Ég hef grun um að ansi fáir af þessum 30 pró­sentum hafi skýra mynd af stefnu­málum Pírata, þetta er meira þannig að fólk sé að leita sér að val­kostum við ríkj­andi ástand,“ sagði Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræð­ingur hjá Háskóla Íslands í sam­tali við Kjarn­ann um þjóð­ar­púls Gallup.

„Þetta er nátt­úru­lega alvar­legt fyrir rík­is­stjórn­ina, hún kemur gríð­ar­lega veikt út úr þessu og mikil óánægja er með hana. En þetta er ekki síður alvar­legt fyrir hina stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana, af því að undir venju­legum kring­um­stæðum myndi ein­hver slíkur flokkur rjúka upp. Þetta er eitt­hvað sem er að gerj­ast í okkar sam­fé­lagi og reyndar í mörgum öðrum, að gömlu flokk­arnir eiga erf­ið­ara og erf­ið­ara að laða að sér fólk. Við erum með flokka­kerfi sem mót­að­ist í allt ann­ars konar þjóð­fé­lagi en við búum í núna, og það er ekk­ert óeðli­legt að fólk sé eitt­hvað dufla við eitt­hvað annað nún­a,“ sagði hann einnig.

Gunnar Helgi vill fara var­lega í það að túlka mikla fylg­is­aukn­ingu við Pírata sem ein­hvers konar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við stefnu­mál flokks­ins. Hins vegar hafi fram­ganga flokks­ins að und­an­förnu vafa­lítið skilað sér í auknu fylgi, en það sama sé ekki upp á ten­ingnum hvað varðar Bjarta fram­tíð. „Þeir ná betur að tjá óánægju og kannski reiði og eitt­hvað þvíum­líkt heldur en Björt fram­tíð sem hefur kannski lagt áherslu á að vera mild­ari og hafa annan tón í póli­tík á meðan Pírat­arnir eru hvass­ari, en án þess að hafa misst sig í ein­hverja vit­leysu.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None