Sérstakur saksóknari vill Kaupþingstoppana í níu ára fangelsi

hreidar-mar.jpg
Auglýsing

Sér­stakur sak­sókn­ari fór fram á að refsiramm­inn fyrir mark­aðs­mis­notk­un­ar­brot yrði full­nýttur auk þess sem tekið yrði til­lit til 72. greinar almennra hegn­ing­ar­laga um aukna refs­ingu þegar hér­að­dómur fellir dóma yfir Hreið­ari Má Sig­urðs­syni, Sig­urði Ein­ars­syni og Ingólfi Helga­syni í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Það þýðir að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara fer fram á að þeir fái allir níu ára fang­els­is­dóma. Frá þessu er greint á mbl.­is.

Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari máls­ins, lauk í dag mál­flutn­ingi sín­um. Hann til­tók ekki sér­stak­lega hvaða refs­ingu hann krefj­ist yfir hinum sex sak­born­ing­unum í mál­inu.

Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson hlutu báðir þunga dóma í Al Thani málinu. Sig­urður Ein­ars­son og Ólafur Ólafs­son hlutu báðir þunga dóma í Al Thani mál­in­u.

Auglýsing

Fleiri mál eftir gagn­vart þre­menn­ing­unum



Þrír sak­born­ing­anna í mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu voru dæmdir til þungrar refs­ingar í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða í febr­ú­ar. ­Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, voru allir dæmdir sekir í Al-T­hani mál­inu í Hæsta­rétti í mál­inu, ásamt Ólafi Ólafs­syni, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður fjögur ár, Ólafur og Magn­ús ­fjögur og hálft ár.

Aðal­með­ferð í mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu á síðan að ljúka í þess­ari viku, en þar er ákærð­u ­gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­leika þeirra með „kerf­is­bundn­um“ og „stór­felld­um“ kaup­um, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­hags­legs styrks bank­ans. Hreiðar Már, Sig­urður og Magnús eru allir ákærðir í mál­inu.

Hreið­ar, Magnús og Sig­urður eru svo einnig ákærðir í CLN-­mál­in­u en þar er þeim gefið að sök að hafa mis­notað stöðu sína sem stjórn­endur bank­ans í lán­veit­ingum til nokk­urra félaga ­sem voru í eigu við­skipta­vina bank­ans. Lánin voru svo notuð til að kaupa skulda­trygg­ingar á Kaup­þing banka, eða svokölluð Credit Lin­ked Not­es, ­með það að mark­miði að lækka álagið og freista þess að opna fyrir fjár­veit­ingar til bank­ans á mark­aði.

Þriðja málið sem er fyrir dóm­stól­um, og bein­ist að Kaup­þings­stjórn­end­um, er Marp­le-­mál­ið svo­nefnda, en Hreiðar Már og Magnús eru ákærðir í því ásamt Guð­nýju Örnu Sveins­dótt­ur, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra bank­ans, og Skúla Þor­valds­syni, fjár­festi og fyrr­ver­andi stórs hlut­hafa Kaup­þings. Ákært er fyrir fjár­drátt, þegar færðir vor­u átta millj­arðar króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marp­le, sem var í eigu Skúla Þor­valds­son­ar, án þess að heim­ild væri fyrir því.

Hámark níu ára fang­elsi



Heim­ild er í hegn­ing­ar­lögum að auka við refs­ingu sem þegar hefur komið fram með dómi, og bæta við hana allt að helm­ingi, ef menn hafa ítrekað verið dæmdir fyrir lög­brot. Níu ára fang­elsi er að það mesta sem Kaup­þings­menn geta feng­ið, þegar allt er tek­ið, og ef sak­fellt verður í öðrum mál­um. Í ljósi for­dæmis úr Al Thani mál­inu, gæti sú staða komið upp að refsiramm­inn yrði full­nýttur áður en málin yrðu til lykta leidd í dóms­kerf­inu sem að þeim bein­ast. Þá kæmi til mats á því, hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, hvort það væri þess virði að fara fram með málin af fullum þunga í dóms­kerf­inu og leiða þau til lykta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None