Sigmundur Davíð segir þjóðina veruleikafirrta

sigmundur.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, skýrir ört minnk­andi stuðn­ing almenn­ings­ við rík­is­stjórn­ina og stjórn­ar­flokk­anna á kjör­tíma­bil­inu í áhuga­verðu við­tali sem birt­ist á Eyj­unni í dag.

Aðspurður um hinn þverr­andi stuðn­ing, svarar for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við blaða­mann Eyj­unn­ar: „Að ein­hverju leyti skýrist þetta kannski á þessu rofi milli raun­veru­leika og skynj­unar eða umfjöll­un­ar. En þarna er líka hollt að líta til ann­arra landa. Það eru fram­kvæmdar sam­bæri­legar kann­anir til dæmis í Bret­landi fyrir kosn­ing­arnar þar, þar sem mátti sjá svip­aðar nið­ur­stöð­ur. Stjórn­mála­menn eru ekk­ert sér­stak­lega vel liðnir á Vest­ur­löndum þessa dag­ana. Það tekur á sig ýmsar birt­ing­ar­mynd­ir, en almennt er ríkj­andi mjög mikið van­traust í garð stjórn­mála­manna og flokka. Sérð það líka nátt­úr­lega á þessum fylgiskönn­unum og þessu ótrú­lega fylgi sem Píratar fá.“

Þá segir Sig­mundur Davíð að nei­kvæð umræða, sem sé oft byggð á rang­færsl­um, hafi sín áhrif. „Auk þess er alveg gegn­um­gang­andi, og þetta á ekki bara við hér á Íslandi en þetta hefur verið sér­stak­lega áber­andi hér und­an­farin ár, að það er verið að ala á tor­tryggni í garð alls og allra. Draga upp þá mynd af öllu sem gert er, að það hljóti að vera eitt­hvað grun­sam­legt þar að baki. Allt frá breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu að lækkun tolla og gjalda þar sem er full­yrt, ein­fald­lega rang­lega, að verið sé að hygla fólki með hærri tekjur þegar sér­stak­lega er verið að huga að þeim sem eru með lægri tekj­urn­ar, eins og töl­urnar sýna okk­ur. Þetta stöðuga nið­ur­rifs­tal auð­vitað hefur sín áhrif. Það er búið að vera ráð­andi hér nei­kvæðni og tor­tryggni sem getur orðið mjög skað­leg,“ segir for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við Eyj­una.

Auglýsing

Raun­veru­leik­inn eitt, til­finn­ingin eitt­hvað annað



Aðspurður um af hverju ónægjan í sam­fé­lag­inu með ástand mála stafi, og af hverju fólk sjái sig knúið til að fara í verk­föll til að knýja fram kjara­bæt­ur, svarar Sig­mundur Dav­íð: „Raun­veru­leik­inn er oft eitt og svo er til­finn­ingin eitt­hvað ann­að. Því er mjög oft haldið á lofti núna, rang­lega, að mis­skipt­ing sé að aukast hér á landi. Auð­vitað er ekki full­kom­inn jöfn­uður hér frekar en ann­ars stað­ar, en hann er þó meiri hér en víð­ast hvar, ef ekki alls staðar ann­ars stað­ar. Og hefur verið að lag­ast enn í tíð þess­arar rík­is­stjórn­ar. En stöðugt er full­yrt að hið gagn­stæða sé raun­in.“

Þjóðin á að ver­a ­bjart­sýn og jákvæð



Þá tekur Sig­mundur Davíð undir það að rík­is­stjórn­inni hafi mis­tek­ist að „virkja sam­taka­mátt þjóð­ar­innar og vinna gegn því sund­ur­lyndi og tor­tryggni sem ein­kennt hafi íslensk stjórn­mál og umræðu í sam­fé­lag­inu um nokk­urt skeið,“ eins og það er orðað í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

„Það er alveg rétt að það er mikið sund­ur­lyndi ríkj­andi. Það satt best að segja ætti ekki að þurfa að vera eins mikið og það er. Bjart­sýni og jákvæðni ætti að vera ríkj­andi. Þegar við berum þró­un­ina hér á landi saman við þró­un­ina nán­ast alls staðar ann­ars stað­ar, þá ættum við Íslend­ingar að vera bjart­sýn á fram­tíð­ina. Reyndar verður þarna að fylgja sög­unni þó ég tali um að nei­kvæðni og tor­tryggni séu áber­andi í umræðu hér á landi, þá er þó stór hluti þjóð­ar­innar ekki á þeim stað. Þótt auð­vitað hafi þetta smátt og smátt áhrif. Við sjáum að mjög stór hluti Íslend­inga vill fara að líta fram á við og er orð­inn þreyttur á nið­ur­rifstal­in­u,“ segir for­sæt­is­ráð­herra í áður­nefndu við­tali við Eyj­una.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None