Vigdís: Óþarfi að „æsa upp ákveðna hópa“ - boðar breytingar á stöðu aldraðra og öryrkja

Vigd.s.Hauks_.64.jpg
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að til­lögur að breyt­ingum á líf­eyr­is­trygg­ingum almanna­trygg­inga muni líta dags­ins ljós á næstu dögum eða vik­um. Það sé því óþarfi að „æsa upp ákveðna hópa í sam­fé­lag­inu“ því það sé löngu vitað að verið sé að ráð­ast í aðgerð­ir. Þetta sagði hún í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 1 í dag.

Vig­dís, Þor­steinn Páls­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, ræddu um aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í kjara­mál­um.

Þar var rætt um þau ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar í gær að það yrði gríð­ar­lega kostn­að­ar­samt að hækka bætur aldr­aðra og öryrkja til jafns við það sem nú hefur verið samið um á almennum vinnu­mark­aði. Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurði hann um málið á Alþingi í gær. Árni Páll sagði að rík­is­stjórnin væri að skilja aldr­aða, öryrkja og atvinnu­lausa eftir í aðgerðum sín­um.

Auglýsing

Þor­steinn sagð­ist halda að þetta væri tíma­bundin frest­un, enda myndu menn ekki kom­ast hjá því að hækka örorku- og elli­líf­eyri á end­an­um. Helgi Hrafn sagði þetta tíma­bundna ástand hafa varað alveg frá hruni hvað varð­aði öryrkja. Það væri auð­velt að gleyma stöðu öryrkja, „þeir geta ekki farið í verk­fall“. Hann sagði við Vig­dísi að það væri engin þörf á því að „æsa öryrkja upp“, þeir væru yfir­leitt mjög reiðir yfir sinni stöðu og það þyrfti rót­tækar breyt­ingar á þeirra stöðu.

Nefnd sem átti að skila til­lögum í fyrra



Vig­dís vísar þarna í nefnd um end­ur­skoðun almanna­trygg­inga­laga, sem var skipuð í nóv­em­ber 2013 og átti upp­haf­lega að skila til­lögum sínum í maí 2014. Þá áttu að liggja fyrir drög að nýjum lögum um líf­eyr­is­rétt­indin almanna­trygg­inga. Verk­efni nefnd­ar­innar var ann­ars vegar að fjalla um starfs­getu­mat sem koma átti í stað gild­andi örorku­mats og sveigj­an­leg starfs­lok, og hins vegar um fjár­hæð líf­eyr­is­greiðslna til aldr­aðra og öryrkja.

Í Viku­lok­unum sagði Vig­dís að Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður nefnd­ar­inn­ar, hefði fundað um málið með for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í gær. „Sú kynn­ing sem ég hef fengið á störfum þessa hóps er mjög til góða.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None