Besti staðurinn fyrir flugvöllinn...er rétt hjá Keflavíkurflugvelli

18529660873_c734a6cc39_z.jpg
Auglýsing

Rögnu­nefndin svo­nefnda, sem Ragna Árna­dótt­ir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar stýrði, hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Hvassa­hraun sé besti stað­ur­inn fyrir flug­völl á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Flug­vall­ar­stæðin sem voru skoðuð eru við Bessa­staða­nes, Hólms­heiði, Hvassa­hraun og Löngu­sker auk þess sem breytt útfærsla á legu flug­brauta í Vatns­mýri var met­in. Áætl­aður stofn­kostn­aður yrði í öllum til­vikum á bil­inu 22 til 25 millj­arðar króna, nema á Löngu­skerjum þar sem hann er met­inn um 37 millj­arðar króna. Hvassa­hraun kom best út, þegar öll atriði voru skoð­uð.

Það sem vekur athygli í þess­ari skoðun nefnd­ar­inn­ar, er að besta nið­ur­staðan sé sú að reisa nýjan flug­völl, alveg frá grunni, í tæp­lega fimmtán mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Kefla­vík­ur­flug­velli, mið­stöð milli­landa­flugs í land­inu.

Auglýsing

Nefndin hafði reyndar ekki það hlut­verk, að horfa til Kefla­vík­ur, en einmitt í ljósi þess hlýtur að vera  næsta skref að kanna Kefla­vík­ur­flug­völl sem val­kost í þessu sam­hengi.

Oft hefur því verið haldið fram að hags­munir lands­byggð­ar­innar séu ekki hafðir með í ráðum, ef nið­ur­staðan verður sú að færa flug­völl­inn úr Vatns­mýri. En minna er hins vegar rætt um það, að ef mið­stöð inn­an­lands­flugs yrði færð til Kefla­vík­ur, þá gætu opn­ast stórar dyr tæki­færa þegar kemur að tengiflugi við hin ýmsu svæði á lands­byggð­inni. Það væri til dæmis góð þjón­usta við ferða­menn ef þeir gætu tekið flugið til Kefla­vík­ur, skipt þar um eitt flug á vell­in­um, og kom­ist til Húsa­víkur í hvala­skoðun eða til Vest­fjarða á sjóstöng. Í þessum tengi­mögu­leikum gætu falist mikil tæki­færi fyrir ferða­þjón­ust­fyr­ir­tæki á lands­byggð­inni, í nálægð við stór­brotna nátt­úru lands­ins.

Von­andi munu stjórn­mála­menn hafa vita á því að horfast í augu við gögn og stað­reynd­ir, og taka næstu skref varð­andi mið­stöð inn­an­lands­flugs, með það í huga. Vatns­mýrin er ekki besti stað­ur­inn fyrir mið­stöð inn­an­lands­flugs­ins, sé mið tekið af nið­ur­stöðu Rögnu­nefnd­ar­inn­ar. Þar ættu að geta verið mikil tæki­færi fyrir Reykja­vík­ur­borg, eins og aug­ljóst er.

Bolt­inn er nú hjá stjórn­mála­mönn­um. Þeir geta alveg farið með hann ofan í skot­graf­irn­ar, eins og venju­lega þegar flug­völl­ur­inn er ann­ars veg­ar, en þeir geta líka tekið upp þá skemmti­legu nýbreytni að sleppa því og vinna fag­lega að næstu skref­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None