10054271513_96440ac9ca_k-1.jpg
Auglýsing

Frá ára­mótum hefur fylgi Pírata auk­ist hratt og í síð­ustu könn­unum mæld­ist það vel yfir 30 pró­sent­um. Það þýðir að Píratar mæl­ast með meira fylgi en báðir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir til sam­ans. Fylgið hefur vakið mikla athygli, og jafn­vel undr­un, en er það eins­dæmi? Hvernig hefur fylgi nýrra flokka þró­ast í sögu­legu sam­hengi? Kjarn­inn kann­aði hvernig nokkrum öðrum flokkum hefur vegnað í gegnum tíð­ina.

Píratar eru í sér­stakri stöðu hvað þetta varð­ar. Þeir voru þegar komnir inn á þing þegar fylgi við þá fór að aukast, en margir aðrir flokkar hafa fengið mikið fylgi til að byrja með og svo hefur fylgið farið hratt lækk­andi. Í við­tali á RÚV fyrir skömmu sagði Stef­anía Ósk­ars­dótt­ir, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, að árangur Pírata sé ein­stæð­ur, en þó sé helst hægt að bera hann saman við fylgi Besta flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2010. Besti flokk­ur­inn fór hratt upp á við í könn­un­um, og viku fyrir kosn­ingar mældu Frétta­blaðið og Stöð 2 Besta flokk­inn með hreinan meiri­hluta og 44 pró­senta atkvæði. Það fór þó ekki svo en nið­ur­staðan var þó glæsi­leg fyrir flokk­inn, 34,7 pró­senta fylgi.

Lilja Mósesdóttir og Birgir Örn Guðjónsson, Biggi lögga, á aðalfundi Samstöðu haustið 2012. Mynd: Samstaða Lilja Mós­es­dóttir og Birgir Örn Guð­jóns­son, Biggi lög­ga, á aðal­fundi Sam­stöðu haustið 2012. Mynd: Sam­staða

Auglýsing

Sam­staða Lilju Mós­es­dóttur

Eitt þekktasta dæmi und­an­far­inna ára um nýjan flokk með mikið fylgi er Sam­staða. Lilja Mós­es­dóttir sagði sig úr þing­flokki VG árið 2011 og tæpu ári síðar var stjórn­mála­flokkur undir for­mennsku henn­ar, Sam­staða - flokkur lýð­ræðis og vel­ferð­ar, stofn­að­ur. Flokk­ur­inn boð­aði nýja hugsun í stjórn­málum, sem væri hvorki til hægri né vinstri.

Það var 7. febr­úar 2012 og þremur dögum síð­ar, 10. febr­ú­ar, birt­ist könnun á fylgi flokk­anna í Frétta­blað­inu. Þá mæld­ist flokk­ur­inn með 21,3 pró­senta fylgi og fjórtán þing­menn. Það var lang­mesta fylgið sem flokk­ur­inn mæld­ist nokkurn tím­ann með­. 29. febr­úar mæld­ist flokk­ur­inn með 11,3 pró­sent í könnun Gallup og 18. mars með 9,1 pró­sent hjá MMR.

Strax í næstu könn­unum á eftir fór þó að halla undan fæti og í ágúst til­kynnti Lilja að hún myndi ekki bjóða sig fram til for­manns á ný á aðal­fundi í októ­ber, og axl­aði þannig ábyrgð á fylgis­tapi flokks­ins. Í októ­ber var því kjör­inn nýr for­mað­ur, Birgir Örn Guð­jóns­son, sem seinna varð frægur á Íslandi sem Biggi lögga. Í sam­tali við mbl.is sagði hann Sam­stöðu sýna hug­rekki með því að gefa „þessum venju­lega milli­stétt­ar­manni tæki­færi“ og nú færi í hönd kosn­inga­bar­átta, enda ætl­aði flokk­ur­inn að bjóða fram í kosn­ing­unum 2013.

Flokk­ur­inn hélt þó áfram að tapa fylgi og í síð­ustu könnun sem flokk­ur­inn var mældur í hjá MMR, í febr­úar 2013, var fylgið 0,7 pró­sent. Í febr­úar var hald­inn lands­fundur þar sem ákveðið var að bjóða ekki fram í kosn­ing­un­um, og Lilja var aftur kjörin for­maður í stað Birg­is.

Róbert Marshall og Björt Ólafsdóttir eru meðal sex þingmanna Bjartrar framtíðar. Róbert Mars­hall og Björt Ólafs­dóttir eru meðal sex þing­manna Bjartrar fram­tíð­ar­.

Rysj­ótt gengi Bjartrar fram­tíðar



Eins og skrifað var hér að ofan var árangur Besta flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum ein­stak­ur. Björt fram­tíð var stofnuð árið 2012 og varð eins konar syst­ur­flokkur Besta flokks­ins. Fylgi flokks­ins hefur verið rysj­ótt en fór hæst í 18,6 pró­sent í lok jan­úar 2013 hjá Gallup og mæld­ist um svipað leyti 17,6 og 17,8 pró­sent hjá MMR. Flokk­ur­inn fór svo lægst í 7,7 pró­senta fylgi hjá MMR og 6,6% hjá Gallup skömmu fyrir kosn­ingar en þegar að þeim kom var fylgið 8,2 pró­sent.

Það fór svo upp á við strax eftir kosn­ingar og fór hæst í 17,5 pró­senta fylgi hjá Gallup í lok mars í fyrra og í 21,8 pró­sent í júní í fyrra hjá MMR. Það sveifl­að­ist milli 15 og 20 pró­senta hjá MMR fram í febr­úar á þessu ári en hefur síðan farið niður á við. Í síð­ustu könnun MMR fór fylgi flokks­ins í fyrsta sinn undir kjör­fylg­ið, og mæld­ist 6,3 pró­sent. Hjá Gallup hefur fylgið farið undir kjör­fylgi í apríl og maí, í 7,8 og 7,4 pró­sent.

Jóhanna Sigurðardóttir



Þjóð­vaki Jóhönnu og Borg­ara­flokkur Alberts hátt upp og niður



Það eru líka eldri dæmi um flokka sem byrja vel en missa fylgi fljótt. Þjóð­vaki Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur mæld­ist með 17,5 pró­senta fylgi fyrst eftir að flokk­ur­inn var stofn­að­ur, sem klofn­ingur út úr Alþýðu­flokknum árið 1995. Fylgið minnk­aði og var mán­uði síðar orðið 10,5 pró­sent og þegar að kosn­ingum kom var fylgið farið niður í 7,2 pró­sent, en það þýddi þó fjóra menn inn á þing.

Sömu sögu má segja af Borg­ara­flokki Alberts Guð­munds­son­ar, sem bauð fram í alþing­is­kosn­ing­unum árið 1987, sem mæld­ist fyrst með um 20 pró­senta fylgi í könn­unum en end­aði með að fá 11 pró­sent í kosn­ing­un­um. Þró­unin var eins hjá Banda­lagi jafn­að­ar­manna, með Vil­mund Gylfa­son í for­ystu, sem byrj­aði mjög hátt en end­aði með rúm­lega sjö pró­senta fylgi.

„Þannig að það eru ýmis dæmi um það að flokkar hafi mælst um tutt­ugu pró­sent og endað við tíu pró­sent,“ sagði Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, við Vísi árið 2012 þegar Sam­staða hafði fengið mikið fylgi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None