Grikkir ræða nýtt tilboð á síðustu stundu - Reynt að hópfjármagna neyðarlánið

h_51768255-1.jpg
Auglýsing

Grísk stjórn­völd fara í dag yfir til­boð frá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, einum lán­veit­anda Grikk­lands, þar sem reynt er til þrautar að koma í veg fyrir yfir­vof­andi greiðslu­fall gríska rík­is­ins. Hluti láns Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins til Grikk­lands fellur á gjald­daga síðar í dag en með sam­komu­lagi á síð­ustu stundu yrði Grikkjum kleift að greiða fjár­hæð­ina. Upp­hæðin sem er á gjald­daga í dag nemur 1,6 millj­örðum evra, eða jafn­virði um 235 millj­arða íslenskra króna. Sam­kvæmt erlendum fjöl­miðl­um, meðal ann­ars Guar­dian sem fylgist grannt með stöðu mála, þykir mögu­legt að Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, ferð­ist til Brus­sel í kvöld og fundi um mögu­lega lausn á síð­ustu stundu.

Eins og kunn­ugt er hafn­aði Alexis Tsipras fyrra til­boði kröfu­hafa Grikk­lands og sendi ákvörð­un­ina um sam­þykkt samn­inga í þjóð­ar­at­kvæð­is­greiðslu þann 5. júlí næst­kom­andi. Leið­togar stærstu evru­ríkj­anna gerði grískum stjórn­völdum það ljóst í gær að atkvæða­greiðslan snérist í raun um áfram­hald­andi aðild Grikkja að evru­sam­starf­inu. Grískir bankar opn­uðu ekki í gær og eru enn lok­aðir almenn­ingi. Ein­ungis er hægt að taka út 60 evrur á dag úr hrað­bönkum og hafa mynd­ast langar biðraðir við hrað­banka.

Auglýsing

Hóp­fjár­magna neyð­ar­lán til Grikk­lands

Á meðan ráða­menn í Evr­ópu reyna að leysa úr flók­inni stöðu sem gæti haft í för með sér ófyr­ir­séðar afleið­ing­ar, þá hefur Breti einn hafið hóp­fjár­mögnun á neyð­ar­láni til Grikk­lands á hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni Indi­egogo. Hann stefnir að því að safna 1,6 millj­örðum evra. Huffington Post fjallar meðal ann­ars um söfn­un­ina undir fyr­ir­sögn­inni „Gríski neyð­ar­sjóð­ur­inn á Indi­egogo er jafn nið­ur­drep­andi og hann hljóm­ar“. Fyrir þriggja evra fram­lag fæst póst­kort frá for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, prentuð í Grikk­landi, grísku efna­hags­kerfi til góðs. Fyrir sex evrur fæst grískt salat með feta-osti og olív­um, fyrir tíu evrur fæst lítil flaska af drykknum Ouzu og fyrir 25 evru fram­lag fæst flaska af grísku víni.



Á hádegi í dag, þriðju­dag, höfðu safn­ast um 103 þús­und evrur sem er ein­ungis brot af upp­hæð­inni sem þarf. Miðað við þann skamma tíma sem er til stefna þykir ólík­legt að lána­greiðsla gríska rík­is­ins verði hóp­fjár­mögnuð af ein­stak­ling­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None