Hafa hætt við að lenda í Keflavík í 33 skipti frá 2005: Eitt skipti af 35 þúsund í fyrra

15423252458_ba83196f85_z.jpg
Auglýsing

Á síð­asta ári neydd­ist ein flug­vél, sem ætl­aði að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli, til að lenda ann­ars staðar vegna ófyr­ir­sjá­an­legra aðstæðna, eftir að und­ir­bún­ingur aðflugs var haf­inn. Flug­vélin lenti á Akur­eyri. Árið 2013 neydd­ust tvær vélar á leið til Kefla­vík­ur­flug­vallar að lenda ann­ars staðar og lentu þær á Egils­stöðum og Akur­eyri. Á fyrstu fjórum mán­uðum þessa árs hafa tvær vélar á leið til Kefla­víkur lent í Reykja­vík, ein á Egils­stöðum og ein á Akur­eyri. Ástæðan fyrir breyttum lend­ing­ar­stað er oft­ast veð­ur.

Þetta er meðal þess sem lesa má úr svari inn­an­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Helga Hrafni Gunn­ars­syni um lend­ingar flug­véla á Kefla­vík­ur­flug­velli og vara­flug­völlum. Hann spyr meðal ann­ars hversu margar flug­vélar sem áttu að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli hafi neyðst til að lenda á Reykja­vík­ur­flug­velli, Akur­eyra­flug­velli og Egils­staða­flug­velli. Tölur voru fengnar frá Icelandair og ná til áranna 2005 til 2015. Upp­lýs­ing­arnar miða allar við flug þar sem und­ir­bún­ingur aðflugs var haf­inn en flug­vélin þurfti frá að hverfa, oft­ast vegna veð­urs.

Auglýsing


Frá árinu 2005 til loka apríl 2015 hafa flug­vélar á leið til Kefla­víkur lent á ein­hverjum af völl­unum þremur í sam­tals 33 skipti, þar af tíu sinnum í Reykja­vík, 14 sinnum á Egils­stöðum og níu sinnum á Akur­eyri. Af 33 skiptum voru tíu þeirra árið 2008, þar af sex lend­ingar á Egils­stöð­um, en bent er á það ár hafi veð­ur­far verið nokkuð erfitt. Sama megi segja um síð­asta vet­ur, en fjórum sinnum hefur verið hætt við aðflug og lent ann­ars staðar en í Kefla­vík það sem af er ári 2015. Þá voru þrjár flug­vélar sem breyttu lend­ing­ar­á­ætlun frá Kefla­vík­ur­flug­velli árið 2010 en það ár olli eld­gosið í Eyja­fjalla­jökli erf­ið­leikum í flugi. Þrjár vélar lentu þá í Reykja­vík, þrjár á Akur­eyri og ein á Egils­stöð­um.



Flug­vélar sem neyð­ast vegna ófyr­ir­séða atburða að breyta um lend­ing­ar­stað eftir að aðflugs-und­ir­bún­ingur er haf­inn mynda brot af öllum þeim lend­ingum sem verða á Kefla­vík­ur­flug­velli. Í svari inn­an­rík­is­ráð­herra er birt tafla yfir árlegan fjölda „hreyf­inga“ flug­véla á Kefla­vík­ur­flug­velli, það eru bæði flug­tak og lend­ing.



Til dæmis voru hreyf­ing­ar á árinu 2014 um 71 þús­und tals­ins. Ef gert er ráð fyrir að helm­ingur hafi verið lend­ing­ar, eða um 35.500 lend­ing­ar, þá þurfti að lenda ann­ars staðar í 0,0029 pró­sent til­vika. Árið 2008, þegar flestar flug­vélar eða alls tíu tals­ins breyttu um flug­völl eftir að und­ir­bún­ingur að lend­ingu var haf­inn, var sama hlut­fall um 0,047 pró­sent. Það eru tíu skipti af alls um 21.500 lend­ingum í Kefla­vík það ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None