Hefur fjárkúgun meiri afleiðingar en tilraun til að sprengja sprengju við stjórnaráðið?

10016383485_15e5251efe_z.jpg
Auglýsing

Til­raun til að kúga for­sæt­is­ráð­herra þjóðar er háal­var­legt mál og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, gerði hið eina rétta í stöð­unni með því að til­kynna það strax til lög­reglu þegar tvær systur reyndu að fá hann til að borga sér millj­ónir króna gegn því að þegja yfir því sem þær töldu vera skað­lega upp­lýs­ingar fyrir hann.

Lög­reglan brást við með því að kalla til sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra til að taka þátt í aðgerðum á þeim stað í Hafn­ar­firði sem afhenda átti fjár­kúg­ur­unum það fé sem þær fóru fram á. Við­bún­aður lög­reglu var mik­ill og ljóst að málið var tekið mjög alvar­lega.

Í bak­her­berg­inu hefur af þessu til­efni verið rifj­aður upp annar atburður sem snérist um ógn gegn for­sæt­is­ráð­herra. Í jan­úar 2012 ákvað þá rúm­lega sjö­tugur mað­ur, S. Val­ent­ínus Vagns­son, að koma fyrir sprengju við heim­ili Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Hann fann hins vegar ekki út hvar hún ætti heima og ákvað þess í stað að koma sprengj­unni fyrir við stjórn­ar­ráð­ið. Þennan sama morgun hafði rík­is­stjórn Íslands fundað í stjórn­ar­ráð­inu.

Auglýsing

Til­raun Val­ent­ínusar var klaufa­leg, hin heima­gerða sprengja var kassi með kók­flösku sem hafði verið fyllt af etanóli og og sprakk ekki eins og sprengju­mað­ur­inn ætl­aði.  Þau skila­boð sem sprengju­mað­ur­inn Val­ent­ínus vildi senda, sam­kvæmt umfjöllun um málið í Reykja­vík Viku­blaði í febr­úar 2015, voru eft­ir­far­andi: Ísland dragi til baka Evr­ópu­sam­bandsum­sókn­ina, hætti þátt­töku í Schen­gen, kvóta­kerf­inu verði breytt og EES-­samn­ing­ur­inn end­ur­skoð­að­ur.

Það tók nokkrar vikur að hafa upp á Val­ent­ínusi. Lýst var eftir hinum klaufa­lega sprengju­manni, sem þá var orð­inn þjóð­þekktur eftir að til­burð­irnir náð­ust á mynd­band og dreifð­ust á sam­fé­lags­miðl­um, með röngum upp­lýs­ingum um ald­ur, hæð og þyngd (hann var sagður á fimm­tugs­aldri, feit­lag­inn og lág­vax­inn). Á Val­ent­ínus­ar­dag­inn 2012 var Val­ent­ínus loks færður til yfir­heyrslu, svaf eina nótt í fanga­klefa og ját­aði síðan á sig verkn­að­inn.

Málið hafði hins vegar enga eft­ir­mála fyrir Val­ent­ín­us. Hann var ekki ákærður og hlaut engan dóm.

Í ljósi þess að Sig­mundur Davíð sagði sjálfur í yfir­lýs­ingu sinni að upp­lýs­ing­arnar sem syst­urnar ætl­uðu að nota til að kúga hann hafi byggst á „get­gátum og sögu­sögn­um“ má velta því fyrir sér hvort þær muni fá sömu með­ferð og Val­ent­ínus, sem ætl­aði að sprengja sprengju heima hjá for­sæt­is­ráð­herra, og málið muni ekki hafa neina eft­ir­mála.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None