Hvað og hvernig - ekki hver

Fjalar Sigurðarson
samsettfjalar.jpg
Auglýsing

Þegar ég og þú, óbreyttir borg­ar­ar, setjum fram okkar per­sónu­legu skoðun á ein­hverju mál­efni, þá skiptir inni­haldið öllu máli. Það er því rangt að ein­blína á það hver setur skoð­un­ina fram eða hvernig hún er sett fram.

Þegar almennur borg­ari setur fram skoð­un, þá er hún bara það. Skoð­un. Hún er ekki bind­andi ákvörðun fyrir fjölda manns eða nið­ur­staða sem aðrir þurfa að fara eft­ir.

Við megum hafa rangar skoð­an­ir. Við megum hafa illa ígrund­aðar og órök­réttar skoð­an­ir. En við megum líka búast við því að aðrir hafi skoðun á okkar skoð­un.

Auglýsing

Það er ekki skerð­ing á tján­ing­ar­frelsi þegar annað fólk er ósam­mála mér. Það er ekki ein­elti eða þöggun ef margir finna göt í rök­semd­ar­færslu hjá mér eða benda á vill­una í mínum þanka­gangi.

HVERNIG - ekki hvað eða hver



Ráð­herra fer með vald fyrir okkar hönd. Þegar ráð­herra beitir því valdi er ekki nóg fyrir hann að birta nið­ur­stöðu eða ákvörð­un. Það er ekki nóg að skrifa bara að svarið sé 42 eða að Fiski­stofa eigi að fara til Akur­eyr­ar. Líkt og nem­andi í stærð­fræði­prófi þarf ráð­herra að sýna útreikn­inga.

Ef útreikn­ingur er skýr og gagn­sær, sést í fyrsta lagi hvert upp­haf­legt reikn­ings­dæmi er. Er yfir höfuð verið að reikna rétt dæmi? Það vill oft gleym­ast.

Í öðru lagi gefur skýr og gagn­sær útreikn­ingur ráð­herr­anum tæki til að leiða aðra í gegnum ferlið við að taka ákvörð­un. Hann getur sýnt skref fyrir skref að nið­ur­staðan var skyn­sam­leg­asta útkoman úr þessu til­tekna dæmi.

Að sama skapi mun gagn­sær útreikn­ingur leiða í ljós rangan útreikn­ing og rangar for­send­ur.

HVAÐ og HVERNIG - ekki hver



Þing­maður á ein­ungis að hlíta eigin sam­visku, ekki skoð­ana­könn­unum eða flokksaga. Þegar stjórn­mála­menn fá í hendur hug­mynd­ir, til­lögur eða frum­vörp ann­arra, er frum­skylda þeirra EKKI sú að hafa mót­aða skoðun eða snjallar lausnir frá eigin brjósti.

Frum­skylda stjórn­mála­manns er að fylgja skyn­sam­legu og rök­réttu ferli við að for­gangs­raða verk­efn­um, skil­greina mark­miðið sem unnið er að og hvernig á að ná þeim mark­mið­um.

Stundum er ekki til neitt ferli. Stundum er eng­inn rammi til utan um verk­efni, vegna þess að verk­efnin eru ein­stök.

Í slíkum til­fellum er verk­efni stjórn­mála­manna að ræða ferlið og rammann fyrst, áður en farið er að ræða inni­hald­ið. Það er ekki góð stjórn­sýsla að hverfa með allt ferlið inn í svartan kassa og skila að lokum frá sér til­kynn­ing­unni: „42 er svar­ið“ - eða hrópa yfir fjöld­ann: „Fylgið skón­um“.

Það er heldur ekki góð stjórn­sýsla að hópa sér á bak við mann­inn með skó­inn eða töl­una 42, vegna þess eins að hróp­and­inn er með mér í flokki, er með mér í liði eða á lög­heim­ili í sömu skot­gröf og ég.

Skot­grafir eru til að fela sig í. Þær eru ekki gagn­sæjar eðli máls­ins sam­kvæmt.

Utan skot­grafa spyrja skyn­samir menn; HVAÐ?, HVERS VEGNA? og HVERN­IG?

Það er aðeins í skot­gröfum sem spurn­ingin HVER skiptir máli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None