Jafnréttið er hornsteinn - Stórkostlegur sigur

Auglýsing

Það hefur verið skammt stórra högga á milli þegar mann­rétt­inda­mál eru ann­ars veg­ar, hér í Banda­ríkj­unum að und­an­förnu. Barack Obama Banda­ríkja­for­seti hefur flutt dramat­ískar ræður sorgar og sigra, með aðeins níu daga milli­bili, þar sem stærsta og dýpsta hug­tak mann­rétt­inda­bar­átt­unnar - jafn­rétti - hefur verið horn­steinn­inn.

Fyrst eftir fjöldamorðið í AME kirkj­unni í Charleston 17.júní, þar sem 21 árs gam­all mað­ur, Storm Dylan Roof, skaut níu svarta safn­ar­með­limi til bana. Ákært hefur verið fyrir hat­urs­glæp kyn­þátta­hat­urs. Við­brögð Obama voru áhrifa­mikil og honum til sóma. Kirkjan á sér sögu sem er grafin í sorg­ar­sögu kyn­þátta­hat­urs í Suð­ur­-Kar­olínu, en kirkjan er sig­ur­staður svartra, þangað sem þeir sóttu skjól og kraft, á tím­um ­þræla­halds­ins, einum versta kafla í ungri sögu Banda­ríkj­anna.

Obama steig fast niður til jarð­ar, og kæfði strax þær aumu kyn­þátta­hat­urs­raddir heimsku og þröng­sýni, sem því miður hljóma stundum hátt í Banda­ríkj­un­um, ekki síst á und­an­förnum mán­uð­um, þar sem obeldi hvítra lög­reglu­manna gagn­vart svörtum hefur verið í brennid­epli. Obama ­gerði það með mál­efna­legri og skyn­sam­legri póli­tík; ákveðnum við­brögðum þar sem inn­takið var það, að kyn­þátta­hat­rið myndi ekki sigra.

Auglýsing

Hin ræð­an, sem flutt var í dag, þegar Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna úrskurð­að­i hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra lög­leg, var um sama horn­stein mann­rétt­inda; jafn­rétt­ið. Þessi sigur verður að telj­ast með þeim stærri í sögu mann­rétt­inda í Banda­ríkj­un­um, og hefur líka kostað miklar fórnir sam­kyn­hneigðra. Og líka hug­rekki, eins og Obama kom inn á. Án hug­rekkis og þraut­seigju sam­fé­lags sam­kyn­hneigðra, í bar­átt­unni við heimsku og þröng­sýni, hefði nið­ur­staðan í dag aldrei orðið að veru­leika.



Margir sigrar bíða þess að vinn­ast þegar mann­rétt­inda­bar­áttan í Banda­ríkj­unum er ann­ars veg­ar, með jafn­rétti sem leið­ar­stef­ið. Því miður er víða brotið gegn svörtum og öðrum hóp­um, og stutt í hatur heimsku og þröng­sýni. En nið­ur­stað­an ­sem Hæsti­réttur hefur nú stað­fest, um rétt­indi sam­kyn­hneigðra, gefur von um að sigur geti unn­ist á öðrum víg­völlum mann­rétt­inda­bar­átt­unnar í fram­tíð­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None