Juncker hneykslaður á vinsældarbrölti Grikkja - Hrun í Grikklandi

h_52020471-1.jpg
Auglýsing

Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, seg­ist hneyksl­aður á fram­göngu stjórn­valda í Grikk­landi, með Syr­iza flokk­inn í broddi fylk­ing­ar, og sakar þau um vin­sæld­ar­brölt og óheið­ar­leika. Hann segir að fólkið í Grikk­landi eigi skilið að fá að „heyra sann­leik­ann“ því fjár­mála­ráð­herrar ríkja ­Evr­ópu­sam­bands­ins hafi verið opnir fyrir því að halda áfram við­ræð­um, sem og full­trúar ann­arra kröfu­hafa Grikk­lands. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi sem Juncker hélt fyrr í dag, og breska rík­is­út­varpið BBC segir frá.

Grísk stjórn­völd hafa ákveðið að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­haldið 5. júlí næst­kom­andi. Nú hafa fjár­mála­ráð­herrar og leið­togar stærstu ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins, Frakk­lands, Þýska­lands og Ítal­íu, sagt að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan muni í reynd snú­ast um hvort Grikkir vilji vera áfram hluti af evru­svæð­inu eða ekki, og taki þá upp drök­muna á nýjan leik, en það var þjóð­ar­gjald­mið­ill Grikk­lands þar til evran var tekin upp árið 2002.

Eins og greint var frá í morg­un, þá telur hópur sér­fræð­inga hjá tíma­rit­inu The Economist telur 60 pró­sent líkur á að grískir kjós­endir styðji við ríkj­andi stjórn­völd og hafni samn­ingn­um. Alls er þó óvíst hvort atkvæða­greiðslan hafi nokk­urt gildi þegar uppi er stað­ið. Hluti af fyrra neyð­ar­láni Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins til Grikk­lands fellur á gjald­daga á þriðju­dag og það er óvíst að gjald­daga verði frestað svo auð­veld­lega.

Auglýsing


Grísk stjórn­völd til­kynntu í gær að bankar í land­inu myndu ekki opna í dag og hefur verið ákveðið að þeir verði lok­aðir alla vik­una. Ein­ungis verður hægt að taka út 60 evrur á dag úr hrað­bönkum á meðan lok­unin stendur yfir, jafn­virði tæp­lega níu þús­und króna. Efna­hags- og banka­hrun virð­ist blasa við Grikkj­um, þó óvissa ríki um hvert fram­haldið verður eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una.



Mark­aðir hafa tekið óviss­unni í Grikk­landi illa. Hluta­bréf hafa víð­ast hvar í Evr­ópu lækkað í verði, en fjár­festar hafa þó ekki tekið skyndi­á­kvarðnir um sölu eða til­færslu á fjár­magni, með til­heyr­andi miklum lækk­un­arafleið­ing­um, að því er segir á vef Wall Street Journal.



Mikil óvissa ríkir um lend­ingu á skulda­vanda Grikkja en samn­inga­við­ræðum við önnur evru­ríki um frek­ari neyð­ar­lán var slitið á laug­ar­dag. Í kjöl­farið til­kynnti Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, að mál­ið, og samn­ings­til­lögur lán­ar­drottna, fari í þjóð­ar­at­kvæði þann 5. júlí næst­kom­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None