Samkomulag í augsýn - Auðmenn skattlagðir og VSK hækkaður

h_52003829-1.jpg
Auglýsing

Efna­hags­ráð­herra Grikk­lands, Gior­gos Stathakis, sagði í við­tali við BBC í dag að lán­ar­drottnar Grikk­lands hefðu sam­þykkt til­lögur þeirra að umbót­um. Það þýði að nú stytt­ist í að hægt verði að ganga frá sam­komu­lagi um áfram­hald­andi neyð­ar­lán til Grikkja frá Seðla­banka Evr­ópu, fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðn­um.

Nýr skattur á auð­menn



Nýr skattur verður lagður á fyr­ir­tæki og auð­ugt fólk og virð­is­auka­skattur verður hækk­aður á ýmsa hluti, sam­kvæmt nýju til­lög­un­um. Stathakis sagði við Robert Peston á BBC að hann væri sann­færður um að til­lögur Grikkja hefðu bundið endi á þrá­teflið. Sam­kvæmt nýju til­lög­unum yrði ekki ráð­ist í frek­ari lækk­anir á líf­eyri eða launum í opin­bera geir­anum og virð­is­auka­skattur á raf­magn verður ekki hækk­að­ur.

Þá sagði Stathakis að stjórn­völd hefðu ákveðið í sam­ráði við AGS og stjórn­völd í evru­ríkj­unum að stefna á að afgangur af fjár­lögum verði eitt pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu á þessu ári, tvö pró­sent á næsta og þrjú pró­sent árið 2017.

Ekki samið um lof­orð Syr­iza



Þrátt fyrir að stjórn­ar­flokk­ur­inn í Grikk­landi, Syr­iza, hafi barist fyrir því að skuldir rík­is­ins verði lækk­að­ar, verður ekki samið um það. Stathakis sagði þó í við­tal­inu að hann hefði trú á því að skulda­nið­ur­fell­ingar yrðu á dag­skránni á næstu mán­uð­um.

Lítið hefur þok­ast í við­ræðum Grikkja við lán­ar­drottna sína und­an­farna fimm mán­uði, sem þýðir að Grikkir hafa ekki fengið síð­ustu greiðsl­una frá þeim upp á 7,2 millj­arða evra.

Auglýsing

Grikkir sendu frá sér nýjar til­lögur að umbótum í nótt, og þeim var almennt vel tekið og þær sagðar vera í átt­ina að því sem lán­ar­drottnar vilja. Vegna þess hversu seint þær komu fram höfðu fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna þó ekki getað kynnt sér þær vel fyrir fund sinn í Brus­sel í dag, og Jer­oen Dijs­sel­bloom, for­seti evru­hóps­ins svo­kall­aða, sagði til­lög­urnar umfangs­miklar en það ætti eftir að reikna út hversu mikil áhrif þær hefðu efna­hags­lega. ­Bú­ist er við því að fjár­mál­ar­ráð­herrar evru­ríkj­anna hitt­ist aftur á fimmtu­dag til að ræða mál­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None