Tólf sagt upp hjá MP banka - Nýtt skipurit kynnt hjá sameinuðum banka

mpbanki.jpg
Auglýsing

Tólf starfs­mönnum MP banka var í dag sagt upp störf­um, átta körlum og fjórum kon­um, í tengslum við sam­runa MP banka og Straums fjár­fest­inga­banka. Sam­run­inn gekk form­lega í gegn í dag en hlut­hafar kusu nýja sjö manna stjórn. Hildur Þór­is­dótt­ir, starfs­manna­stjóri MP banka, stað­festir í sam­tali við Kjarn­ann að tólf hafi verið sagt upp í dag, af ýmsum svið­um.

Sam­ein­aður banki, sem sam­ein­ast undir kenni­tölu MP banka, mun starfa undir nafn­inu MP Straumur þar til nýtt nafn verður kynnt. Skipu­lagi bank­ans breytt í dag en það sam­anstendur af fjórum ein­ing­um, eigna­stýr­ingu, mark­aðsvið­skipt­um, fyr­ir­tækja­sviði og alþjóða­sviði.

Yfir­menn í sam­ein­uðum banka verða eft­ir­far­andi: Sig­urður Hann­es­son verður fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ing­ar, Bjarni Eyvinds Þrast­ar­son verður fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta en hann var áður fram­kvæmda­stjóri mark­aða, Ásgeir Helgi Reyk­fjörð, fyrrum yfir­lög­fræð­ingur MP banka, verður fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs, og fram­kvæmda­stjóri alþjóða­sviðs verður Magnús Bjarna­son, nýr starfs­maður bank­ans. Þá verður Magnús Ingi Ein­ars­son,­fyrrum fram­kvæmda­stjóri fjár­mála hjá Straumi, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs, Hildur Þór­is­dóttir verður mark­aðs- og mannauðs­stjóri, Thomas Skov Jen­sen verður for­stöðu­maður áhættu­stýr­ing­ar, Birna Hlín Kára­dóttir verður yfir­lög­fræð­ingur og Dan­íel Pálma­son verður reglu­vörður bank­ans.

Auglýsing

Magnús Bjarna­son starf­aði áður sem for­stjóri Icelandic Group á árunum 2012 til 2014. ­Fyrir þann tíma starf­aði hann meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stjóri mark­aðs- og við­skipta­þró­un­ar­sviðs Lands­virkj­un­ar, alþjóða­sviðs Íslands­banka og dóttur fyr­ir­tækis þess í Banda­ríkj­unum Glitnir Capi­tal Cor­poration sem síðar varð Glacier Partners. Magnús var einnig við­skipta­full­trúi og aðal­ræð­is­maður Íslands í New York á árunum 1997 til 2003. Hann tekur til starfa hjá MP Straumi þann 1. ágúst næst­kom­andi, að því er fram kemur í til­kynn­ingu sem send var fjöl­miðlum í kvöld.

Í til­kynn­ing­unni segir Sig­urður Atli Jóns­son, for­stjóri bank­ans, að vinnu við sam­ein­ingu sé alls ekki lok­ið. „Þetta eru stór tíma­mót og ástæða til að fagna því hversu vel þessi sam­ein­ing hefur gengið fyrir sig. Vinnu við sam­ein­ing­una er þó alls ekki lok­ið. Mikið verk er framundan við að sam­eina fyr­ir­tækin og allt það góða starfs­fólk sem hér starfar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None