94 hælisleitendur það sem af er ári en búist við minnst 200 í lok árs

10191521713-a0fe08b602-z.jpg
Auglýsing

94 ein­stak­lingar hafa óskað hælis á Íslandi það sem af er ári. Á sama tíma í fyrra var fjöld­inn 70 ein­stak­ling­ar. Þetta kemur fram í máli Krist­ínar Völ­und­ar­dótt­ur, for­stjóra Útlend­inga­stofn­un­ar, í Morg­un­blað­inu í dag.

Kristín segir að aukn­ingin hafi ekki komið á óvart og búist sé við meira en tvö­falt fleirum í ár. Flestir hæl­is­leit­end­urnir eru frá Alban­íu, 26 tals­ins. Tólf hæl­is­leit­endur eru frá Sýr­landi og sex frá Makedón­íu. Einnig hafa komið ein­stak­lingar frá Pakistan, Íran og Úkra­ínu.

Flestir hæl­is­leit­end­anna eru karl­ar, 55 af 94. 29 konur eru í hópi hæl­is­leit­enda og tíu börn á aldr­inum eins til sautján ára. Kristín segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að hún hafi ekki hald­bærar tölur um það hversu margir umsækj­endur um vernd séu hér á landi, af því að hluti fólks­ins sé með vinnu og á eigin fram­færslu. „Þann 10. júlí þáðu 185 ein­stak­lingar aðstoð frá íslenska rík­inu á þessum for­send­um,“ segir hún.

Auglýsing

Verið er að ganga frá nýju hús­næði fyrir hæl­is­leit­endur á Grens­ás­vegi í Reykja­vík, en þar munu 20 til 24 karl­menn vera búsett­ir. Áætlað er að það opni í nóv­em­ber.

Einnig er unnið að opnun gisti­heim­ilis í Bæj­ar­hrauni í Hafn­ar­firði, en þar verður einnig tíma­bundin mót­töku­mið­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Það er til­rauna­verk­efni en gert er ráð fyrir því að var­an­leg mið­stöð verði stofnuð á næsta ári. Að lok­inni dvöl í mót­töku­mið­stöð­inni er áætlað að fólk fari til Reykja­víkur eða Reykja­nes­bæj­ar, þeirra sveit­ar­fé­laga sem sjá um hæl­is­leit­endur á meðan þeir bíða úrlausnar sinna mála. „Hér er um að ræða þarfa þjón­ustu og við­bót við fólk sem sækir um alþjóð­lega vernd á Íslandi og mik­il­vægt að vel sé staðið að því,“ segir Kristín við Morg­un­blað­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None