Engir fulltrúar neytenda í verðlagsnefnd búvara - umdeildur formaður endurskipaður

13223523394_c752e6b142_z.jpg
Auglýsing

Hvorki Banda­lag starfs­manna ríkis og bæja (BS­RB) né stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) nýttu rétt sinn til að til­nefna full­trúa í nýja verð­lags­nefnd búvara. Til­kynnt var um nýja nefnd í dag og ákvað vel­ferð­ar­ráðu­neytið að til­nefna tvo full­trúa í stað full­trúa laun­þega og neyt­enda.

Ólafur Frið­riks­son, sem sætt hefur ásök­unum um að sitja beggja megin borðs þegar kemur að ákvörðun um verð­lag búvara, en hann sat um ára­bil í stjórnum fjölda fyr­ir­tækja með stjórn­endum Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem er annar eig­andi Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS), var end­ur­skip­aður for­maður nefnd­ar­innar af Sig­urði Inga Jóhanns­syni, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Ólafur er skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti Sig­urðar Inga.

Utan for­manns sitja tveir full­trúar Bænda­sam­taka Íslands, tveir full­trúar Sam­taka afurð­ar­stöðva í mjólkur­iðn­aði og, líkt og áður var greint frá, tveir full­trúar skip­aðir af vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, í stjórn verð­lags­nefndar búvara.

Auglýsing

Ný nefnd er skipuð eft­ir­far­andi nefnd­ar­mönn­um:



  • Ólafur Frið­riks­son, for­maður


  • Sig­urður Lofts­son, til­nefndur af Bænda­sam­tökum Íslands


  • Sig­ur­geir Sindri Sig­ur­geirs­son, til­nefndur af Bænda­sam­tökum Íslands


  • Jóhannes Æ. Jóns­son, til­nefndur af Sam­tökum afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði sf.


  • Guð­rún Sig­ur­jóns­dótt­ir, til­nefnd af Sam­tökum afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði sf.


  • Björg Bjarna­dótt­ir, til­nefnd af vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu


  • Sverrir Björn Björns­son, til­nefndur af vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu




Rík­is­end­ur­skoðun taldi ekki rétt að fjalla um hæfi



Mál­efni verð­lags­nefnd­ar­innar komust í hámæli í októ­ber í fyrra eftir að Kast­ljós fjallað um að Ólafur Frið­riks­son, for­maður nefnd­ar­inn­ar, hafi um ára­bil setið í stjórnum fjölda fyr­ir­tækja með stjórn­endum Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem er annar eig­andi MS.

Í kjöl­far umfjöll­unar Kast­ljóss sagði Sig­urður Ingi að hann ætl­aði að fara fram á að Rík­is­end­ur­skoðun færi yfir ákvarð­anir nefnd­anna tveggja síð­ustu tvö til þrjú árin. Beiðni um úttekt­ina barst í októ­ber og í kjöl­farið hófst for­könn­un. Í lok apríl skil­aði Rík­is­end­ur­skoðun þeirri nið­ur­stöðu að hún gerði ekki athuga­semd við stjórn­sýslu verð­lags­nefndar búvara og ráð­gjaf­ar­nefndar um inn- og útflutn­ing land­bún­að­ar­vara, sem Ólafur veitir líka for­mennsku. Hún taldi enn­fremur ekki rétt að fjalla um almennt hæfi Ólafs né að taka afstöðu til ymissa álita­mála, það væri á færi stofn­ana eins og umboðs­manns Alþing­is.

ASÍ og BSRB vilja mjólkur­iðnað undir sam­keppn­is­lög



Mið­stjórn ASÍ sendi frá sér ályktun um stöðu mála í mjólkur­iðn­aði 11. júní síð­ast­lið­inn þar sem til­kynnt var að hvorki BSRB né ASÍ myndu skipa full­trúa í nefnd­ina. Þar sagði m.a.: „Stjórn­völd hafa í sam­starfi við bændur og afurða­stöðvar gert miklar breyt­ingar á starfs­skil­yrðum mjólk­ur­fram­leiðsl­unn­ar. Það hefur löngum verið skoðun mið­stjórnar ASÍ að núver­andi fyr­ir­komu­lag í mjólkur­iðn­aði sé hvorki besta leiðin til að bæta hag neyt­enda né að það skapi næga hvata fyrir fram­leið­endur til þess að auka sam­keppn­is­hæfni, fram­leiðni og lækka vöru­verð. Þvert á móti hefur núver­andi fyr­ir­komu­lag komið í veg fyrir að virkja þá hvata sem leiða til heil­brigðrar sam­keppni sem kemur öllum til góðs. Nýleg dæmi, þar sem MS hefur kerf­is­bundið komið í veg fyrir inn­komu nýrra aðila á markað gert stórum aðilum kleift að nýta, og í mörgum til­fellum mis­nota, sér mark­aðs­ráð­andi stöðu til að koma í veg fyrir sam­keppni.

Alþýðu­sam­band Íslands hefur ítrekað ályktað að auk­inn inn­flutn­ingur land­bún­að­ar­vara, minnkun fram­leiðslu­tengdra styrkja og afnám opin­berrar verð­lagn­ingar geti bæði aukið fram­leiðni og sam­keppn­is­hæfni mjólkur­iðn­aðar og skilað ábata til fram­leið­enda og jafnt verið eina vörn sem neyt­endur hafa gegn þessum ein­ok­un­ar­til­burð­um. [...]Nú er svo komið að mið­stjórn ASÍ og stjórn BSRB hafa sam­eig­in­lega lýst því yfir, að sam­böndin muni hætta allri þátt­töku í Verð­lags­nefnd mjólk­ur­af­urða. Jafn­framt er það krafa mið­stjórnar ASÍ að allur mjólkur­iðn­að­ur­inn, frá fram­leið­endum til smá­sölu­dreif­ing­ar, verði felldur undir ákvæði sam­keppn­islaga og lúti sömu reglum og önnur atvinnu­starf­semi, þ.m.t. ákvæði um tak­mörkun á áhrifum og umfangi mark­aðs­ráð­andi aðila.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None