Fylgi Trumps mælist 24 prósent - Sagður heimsins stærsta tröll

h_51820439-1.jpg
Auglýsing

Auð­kýf­ing­ur­inn Don­ald Trump mælist vin­sælasta for­seta­efn­i Repúblikana­flokks­ins, sam­kvæmt nýrri könnun Was­hington Post og ABC sjón­varps­stöðv­ar­innar. Fylgi Trumps mæld­ist 24 pró­sent í könnun sem gerð var dag­ana 16. til 19. júlí. Það er tvö­falt meira fylgi en hjá næsta fram­bjóð­anda. Eng­inn Repúblikani hefur mælst með meira fylgi í könn­unum á þessu ári. Vin­sældir Trumps hafa sexfald­ast frá því í byrjun maí, skömmu áður en hann til­kynnti form­lega um að hann sæk­ist eftir því að vera for­seta­efni Repúblik­ana í for­seta­kosn­ing­unum 2016.

Næstur á eftir Trump í skoð­ana­könnun Was­hington Post og ABC News er Scott Wal­ker, rík­is­stjóri Wisconsin fylk­is. Hann til­kynnti um fram­boð sitt fyrir viku síð­an. Jeb Bush, fyrrum rík­is­stjóri Flór­ída fylkis og bróðir George Bush fyrrum Banda­ríkja­for­seta, mælist með 12 pró­sent fylgi. Sjö aðrir fram­bjóð­endur í for­vali flokks­ins fengu þrjú til átta pró­sent fylgi en alls eru 16 í fram­boði.

Auglýsing


Aldrei hafa verið svo margir fram­bjóð­endur í for­vali Repúblikana­flokks­ins. Því var ákveðið að ein­ungis tíu kæmust að í kom­andi sjón­varp­s­kapp­ræðum sem sjón­varps­stöðin Fox News stendur fyr­ir. Þær fyrstu verða haldnar þann 6. ágúst næst­kom­andi og verður valið í þær eftir mældum vin­sældum fram­bjóð­enda í skoð­ana­könn­un­um. Nið­ur­stöður kann­ana í dag skipta því miklu máli, jafn­vel þótt kosn­inga­bar­áttan sé aðeins nýhafin fyrir alvöru.

Vin­sældir dvína eftir skot á McCain

Frá því að Trump til­kynnti um fram­boð sitt til for­seta­efnis Repúblik­ana hefur hann látið hver umdeildu ummælin falla á fætur öðru. Á laug­ar­dag­inn sagði hann John McCain, öld­ung­ar­deild­ar­þing­mann flokks­ins og fyrrum for­seta­fram­bjóð­anda, ekki vera stríðs­hetju. Á 7. ára­tugnum var McCain fangi Norð­ur­-Ví­etnamska hers­ins í fimm og hálft ár og var pynt­aður ítrekað á þeim tíma.



Margir brugð­ust illa við ummælum Trumps um flokks­fé­laga sinn, auð­kýf­ing­ur­inn dróg lít­il­lega í land með ásak­anir sínar en baðst ekki afsök­unar.



Í skoð­ana­könnun Was­hington Post og ABC, sem gerð var dag­ana 16. til 19. júlí, féllu vin­sældir Trumps veru­lega eftir að hann gerði lítið úr John McCain. Blaða­menn Was­hington Post segja erfitt að meta það á þessum tíma­punkti hver þró­unin verður á vin­sældum Trumps í kjöl­far póli­tískrar árásar hans á McCain.

Er Trump heims­ins stærsta tröll?

Vin­sældir Trumps meðal hluta kjós­enda Repúblikana­flokks­ins má meðal ann­ars rekja til óvæg­inna og harð­neskju­fullra ummæla hans um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­un­um. „Þegar Mexíkó sendir fólkið sitt, þá er það ekki besta fólkið þeirra. Þau senda fólk sem glíma við mörg vanda­mál og þau taka þessi vanda­mál með sér. Þau taka með sér fíkni­efni og glæpi. Þetta eru nauð­gar­ar,“ sagði Trump í einni umdeild­ustu ræðu sinni um inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum frá nágranna­rík­inu Mexíkó.



Mörgum þykir afstaða Trump afar ­for­dóma­full og fáfróð. Vegna ummæla sinna hefur hann misst sjón­varps­samn­ing og fjöl­mörg fyr­ir­tæki hafa rift samn­ingum við hann. Engu að síður hafa vin­sæld­irnar haldið áfram að aukast í skoð­ana­könn­un­um.



Nate Sil­ver, rit­stjóri frétta­síð­unnar FiveT­hir­tyEight.com, birti í gær úttekt þar sem hann sagði Trump vera heims­ins stærsta „tröll“. Þar á hann við ein­stak­ling sem vilj­andi skapar ill­deilur og kallar á athygli með öllum til­tækum ráðum, meðal ann­ars illa ígrund­uðum og ögrandi skoð­un­um. Sil­ver er ósam­mála ákvörðun fjöl­mið­ils­ins Huffington Post um að skil­greina allt sem við­kemur kosn­inga­bar­áttu Trumps sem skemmti­efni en ekki póli­tískar frétt­ir. „Fram­boð hans er stjórn­mála­saga en ekki ein­göngu skemmti­efn­i,“ segir Sil­ver. „Eftir tólf ár sem blaða­maður á inter­net­inu, þá hef ég lært að hið forn­kvæða er satt. Ekki gefa tröll­inu að borða. Eina leiðin til þess að drepa tröll eins og Trump er að veita því ekki athygl­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None