Hafa þau skilyrði sem Ólafur Ragnar setti fyrir að hætta verið uppfyllt?

15247571896-249601b780-z.jpg
Auglýsing

Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, er maður sem kann vel við sviðs­ljós­ið. Og hann er betri en flestir að koma sér þang­að. Ein slík leið er að gefa út loðnar yfir­lýs­ingar um hvort hann hygg­ist sitja áfram í emb­ætti eða ekki.

Í nýársávarpi sínu 2012 sagði for­set­inn að hann ætl­aði ekki að halda áfram þrátt fyrir að tím­arnir væru „mark­aðir veru­legri óvissu og er þá einkum vísað til stöðu stofn­ana og sam­taka á vett­vangi þjóð­mál­anna, að stjórn­ar­skráin hafi verið sett í deiglu breyt­inga, full­veldi Ís­lands orðið dag­skrár­efni vegna við­ræðna við Evr­óp­uríki og áríð­andi sé að mál­staður þjóð­ar­innar birt­ist skýrt í alþjóð­legri umfjöll­un.“

Þremur mán­uðum síðar snérist honum hugur og til­kynnti að hann ætl­aði víst að bjóða sig fram. Í stuttri til­kynn­ingu rök­studdi Ólafur Ragnar það m.a. með því að vísa í „vax­andi óvissu varð­andi stjór­skipan lands­ins og stöðu for­seta í stjórn­ar­skrá, umróts á vett­vangi þjóð­mála og flokka­kerfis sem og átaka um full­veldi Íslands“.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu Ólafs Ragn­ars bað hann þjóð­ina hins vegar líka um að sýna því skiln­ing að þegar stöð­ug­leiki hefði skap­ast í stjórn­skipan lands­ins og stjórn­ar­fari og "staða okkar í sam­fé­lagi þjóð­anna hefur skýrst ákveði ég að hverfa til ann­arra verk­efna áður en kjör­tíma­bilið er á enda".

Ljóst er að Ólafur Ragnar hefur ekki látið verða af því að reyna á skiln­ing þjóð­ar­innar gagn­vart því að hætta á miðju kjör­tíma­bili enda vel hægt að færa rök fyrir því að ekk­ert þeirra skil­yrða sem hann setti fyrir að hætta hafi upp­fyllst.

Eftir að þjóðin sam­þykkti inni­hald nýrrar stjórn­ar­skrár í kosn­ingum ákvað Alþingi að hunsa þann þjóð­ar­vilja og afgreiða ekki stjórn­ar­skrána. Sú ákvörðun er m.a. talin stór breyta í hruni á fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar og stór­auknu fylgi Pírata. Með stjórn­ar­skrár­málin í slíku upp­námi hefur varla skap­ast stöð­ug­leiki í stjórn­skipan lands­ins og stjórn­ar­fari. Það má því einnig færa mjög sterk rök fyrir því að enn sé gríð­ar­legt umrót á vett­vangi þjóð­mála og flokka­kerf­is, sér­stak­lega þar sem allir hefð­bundnu stjórn­mála­flokk­arnir mæl­ast með mjög lítið fylgi í öllum sam­an­burði, rík­is­stjórnin er sögu­lega óvin­sæl og afl sem hefur beint lýð­ræði á stefnu­skrá sinni er lang­vin­sælasta stjórn­mála­afl lands­ins sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­um. Og engin virð­ist vita hver staða Evr­ópu­sam­bandsum­sóknar lands­ins raun­veru­lega er í kjöl­far þess bréfa­send­ing­ar­farsa sem ráð­ist var í snemma á þessu ári.

En nú hefur Ólafur Ragnar gefið það út að hann ætli sér að til­kynna um fram­haldið í næsta nýársávarpi sínu. Þá fær prúð­búin þjóðin að vita hvort íslensk stjórn­mál og alþjóða­sam­fé­lagið þoli brott­hvarf for­set­ans eða hvort hann neyð­ist til að standa vakt­ina áfram svo glund­roði nái ekki yfir­hönd­inni.

Eða kannski boðar hann eitt en skiptir um skoðun nokkrum vikum síð­ar. Annað eins hefur nú gerst.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None