Kalmarhem - sænskt "not for profit " leigufélag

Guðmundur Guðmundsson
10191443684_b9a99b5758_z.jpg
Auglýsing

Fólks­fjöldi í Kal­mar kommun er um 65.000 manns, eða um helm­ingur á við Reykja­vík. Í Kal­mar á og rekur sveit­ar­fé­lagið 4.700 leigu­í­búðir af ýmsum stærð­um. Íbúð­irnar eru fyrir alla þjóð­fé­lags­hópa, óháð aldri, tekjum eða þjóð­fé­lags­stöðu.

Dæmi um verð: eins her­bergja, 42 fer­metr­ar: 58.000 ISK (3.700 SEK).

Fjög­urra her­bergja, 96 fer­metrar 118.000 ISK (7.490 SEK).

Auglýsing

Hiti er inni­fal­inn í leigu­verð­inu, trygg­ingar eða fyr­ir­fram­greiðslu er ekki kraf­ist. Leigj­andi skal hafa tekjur sem sam­svara tvö­faldri leigu­upphæð á mán­uði. Leigj­andi má vera á van­skila­skrá, en má ekki skulda leigu.

Kal­mar kommun lítur á rekstur leigu­í­búða sem sjálf­sagðan hluta af þjón­ustu við íbúa svæð­is­ins. Þak yfir höf­uðið er jú lífs­nauð­syn, rétt eins og vatns­veita, sjúkra­þjón­usta, skól­ar, vegir osfrv.

Þessar íbúðir eru vin­sælar og fá færri en vilja. Kal­mar áformar að byggja 75 íbúðir árlega til að halda í horf­inu næstu árin.

Fyrir utan ofan­greindar íbuðir reka einka­að­ilar nokkur þús­und leigu­í­búðir í Kal­mar. Verðin og skil­málar eru svipað og hjá Kal­mar­hem, sem ræður ferð­inni á þessum mark­aði í krafti stærðar sinn­ar. Fjöldi leigu­í­búða á svæð­inu er því uppundir 10.000.

Ef sama hugsun gilti í reyk­vískum hús­næðs­is­málum væru lík­lega 20.000 leigu­í­búðir í Reykja­vík reknar með þessum hætti, þar af helm­ing­ur­inn á vegum borg­ar­inn­ar.

Í Kal­mar þykir leigu­verð hátt, og í augna­blik­inu eru aðeins 3 íbúðir að losna hjá Kal­mar­hem. Það eru 67 manns á biðlista.

Hvernig væri ástandið í Kal­mar ef reyk­víska hús­næð­is­for­múlan væri notuð á svæð­inu?



Höf­undur er sjó­maður og áhuga­maður um launa- og hús­næð­is­mál íslenskrar alþýðu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None