KÚ kærir ákvörðun verðlagsnefndar og segir henni stefnt gegn samkeppni

13223523394_c752e6b142_z.jpg
Auglýsing

Mjólk­ur­búið KÚ mót­mælir harð­lega ákvörðun verð­lags­nefndar búvara um hækkun á óger­il­sneiddri hrá­mjólk til úrvinnslu og segir að smærri úrvinnslu­að­ilar þurfi nú að greiða 17,44 pró­sent sam­keppn­is­skatt til Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) ofan á mjólk­ur­verð. Í frétta­til­kynn­ingu frá KÚ er ein­hliða ákvörðun verð­lags­nefndar sögð óeðli­leg. Verð á óger­il­sneiddri hrá­mjólk til úrvinnslu hækki um 4 pró­sent á sama tíma og hækkun á afurða­verði til bænda hækki aðeins um 1,47 krónur eða 1,77 pró­sent. „Þess­ari hækkun er stefnt gegn sam­keppni á mjólk­ur­vöru­mark­aði og mun valda smærri fyr­ir­tækjum sem starfa á þessum mark­aði fjár­hags­legu tjóni. Ákvörðun er með öllu óskilj­an­leg þar sem mjólk­ur­verð hækkar aðeins um 1,47 krónur eða 1,77% til bænda og engin hækkun hefur orðið á flutn­ings­kostn­aði sem er eftir sem áður 3,5 krónur á hvern ltr. Þannig er sam­keppn­is­að­ilum MS ætlað að greiða niður rekstur MS enn frekar með til­heyr­andi skaða fyrir neyt­end­ur. Sam­keppn­is­að­ilar MS greiða því 17,44% hærra hrá­efn­is­verð en MS sem er ólíð­and­i,“ segir í til­kynn­ing­unni en í henni er verð­lags­nefnd búvara kölluð „verð­lags­nefnd MS“.

Ólafur M. Magn­ús­son, eig­andi KÚ mjólk­ur­bús, sendir fjöl­miðlum í dag yfir­lýs­ingu þar sem meðal ann­ars segir að KÚ muni kæra ákvörðun verð­lags­nefnd­ar­innar til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, þar sem hún gangi frek­lega gegn sam­keppni á mjólk­ur­vöru­mark­aði og sé brot á sam­keppn­is­lögum er varða mark­aðs­mis­notk­un. „Hags­munir neyt­enda eru með öllu bornir fyrir róða með þess­ari ákvörðun ekki síst þar sem mjólk­ur­fram­leiðsla á Íslandi býr jafn­framt við mikla toll­vernd.  Verð­lags­nefnd „Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar“ stefnir því leynt og ljóst að því tryggja að nýir aðilar geta ekki með nokkru móti keppt við MS vegna ofur „skatt­lagn­ing­ar“ á hrá­efn­ið. Þessi fram­ganga er sér­stak­lega ámæl­is­verð þar sem MS hefur komið sér hjá því að taka ábyrgð á langvar­andi og ítrek­uðum brotum á Sam­keppn­is­lögum með laga­tækni­legum klækjum og útúr­snún­ing­um. Með þess­ari ákvörðun er ljóst að Mjólk­ur­sam­salan er í þeirri sér­stöðu að geta lagt íþyngj­andi skatt á sam­keppn­is­að­ila sína og nýtur til þess bless­unar stjórn­valda,“ segir Ólafur í frétta­til­kynn­ing­unni.

Auglýsing


„Stjórn­völd hafa svo bitið haus­inn af skömminni með því að fjársvelta Sam­keppn­is­eft­ir­litið og fleiri eft­ir­lit­stofn­anir með þeim afleið­ingum að þau geta illa eða mjög seint sinnt hlut­verki sínu og lokið mál­um.  Þannig taki afgreiðsla kæru­mála lengri tíma en eðli­legt getur talist sem bitnar á hags­munum neyt­enda og almenn­ings. Nú er því brýna en nokkru sinni fyrr að nið­ur­stöður fáist í margra ára kæru­mál sem eru til með­ferðar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og snúa að alvar­legum og ítrek­uðum brotum Mjólk­ur­sam­söl­unnar á sam­keppn­is­lög­um.“



Vísað er til nýlegrar skýrslu Hag­fræði­stofn­unar þar sem lagt er til að mjólk­ur­fram­leiðslu­kerfi á Íslandi verði gjör­bylt. „Er það ekki síst brýnt í ljósi nýlegar skýrslu Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands sem hefur tekið mjög afdrátt­ar­laust undir gagn­rýni og ábend­ingar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­keppn­is­hömlur í mjólkur­iðn­aði og land­bún­aði hér á land­i,“ segir Ólaf­ur.

Leggja til miklar breyt­ingar

Fjallað var um skýrslu Hag­fræði­stofn­unar á Kjarn­anum í síð­asta mán­uði. Lagðar eru til miklar breyt­ingar á mjólk­ur­fram­leiðslu­kerf­inu á Íslandi en fram kom í skýrsl­unni að í dag þurfa ríkið og eig­endur þess, íslenskir neyt­end­ur, að borga um átta millj­örðum krónum meira fyrir fram­leiðslu á henni en ef mjólkin hefði ein­fald­lega verið flutt inn frá öðru fram­leiðslu­landi á árunum 2011 til 2013. Ríkið og neyt­endur borg­uðu 15,5 millj­arða króna fyrir mjólk­ina á tíma­bil­inu en inn­flutt mjólk, með flutn­ings­kostn­aði, hefði kostað 7,5 millj­arða króna.



Lands­sam­band kúa­bænda og Bænda­sam­tökum brugð­ust fljótt við skýrsl­unni og sögðu hug­myndir sem í henni er að finna koll­varpa núver­andi fyr­ir­komu­lagi mjólk­ur­fram­leiðslu. Í til­kynn­ingu frá Lands­sam­bandi kúa­bænda og Bænda­sam­tök­unum segir að verð á mjólk­ur­vörum hafi verið hag­felld neyt­end­um, og því hefði átt að vera gert hærra undir höfði í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None