Ný heimildarmynd eftir Michael Moore frumsýnd í haust

michael.morre_.jpg
Auglýsing

Ný heim­ild­ar­mynd banda­ríska leik­stjór­ans Mich­ael Moore verður frum­sýnd á Alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­inni í Toronto, TIFF, í sept­em­ber næst­kom­andi. Myndin heitir „Where to Invade Next“ eða „Næsta inn­rás“ í laus­legri þýð­ingu. Sam­kvæmt frétt The Guar­dian fjallar heim­ild­ar­myndin um það hvernig banda­rísk stjórn­völd eru sífellt í stríðs­rekstri.

Where to Invide Next verður fyrsta myndin frá Moore í sex ár en hann hefur leik­stýrt fjölda mynda. Hann fékk Ósk­arsverð­laun fyrir heim­ild­ar­mynd­ina Bowl­ing for Col­umbine árið 2002, gerði Fahren­heit 9/11 árið 2004 um stríð George Bush, fyrrum Banda­ríkja­for­seta, gegn hryðju­verk­um, og fjall­aði um brotala­mir í banda­rísku heil­brigð­is­kerfi í mynd­inni Sicko frá árinu 2007. Fahren­heit 9/11 er tekju­hæsta heim­ild­ar­mynd allra tíma.

Moore greindi frá umfjöll­un­ar­efni nýju mynd­ar­innar í gegnum útsend­ing­ar-­for­ritið Per­iscope í gær. Hægt er að horfa á sex mín­útna langa upp­tök­una hér að neð­an, þar sem Moore svarar meðal ann­ars spurn­ingum sem honum bár­ust á Twitt­er. Moore byrj­aði á því að heilsa „vinum mínum hjá NSA [Banda­ríska þjóðar­ör­ygg­is­stofn­un­in] sem eru að horfa“ en Moore, sem er afar póli­tískur, hefur verið mjög gagn­rýnin á starf­semi eft­ir­lits­stofn­un­ar­inn­ar.

Auglýsing

Að sögn Moore var myndin tekin upp í þremur heims­álfum og hafa tökur farið fram leyni­lega síð­ustu sex ár. „Það að Banda­ríkin séu í stöð­ugum stríðs­rekstri hefur valdið mér nokkrum áhyggjum um nokkra hríð og veitir nauð­syn­lega háðs­deilu fyrir þessa mynd. Það er þessi stans­lausa þörf að eiga óvin, hvar er næsti óvinur þannig að við getum haldið her­iðn­að­inum gangn­andi, og haldið fyr­ir­tækj­unum sem græða hell­ing af pen­ingum lif­andi. Þetta hefur alltaf truflað mig og þaðan kemur gam­an­mynd­in,“ sagði Moore. Blaða­menn The Guar­dian meta það svo að orða­lagið bendi til að tónn­inn í heim­ild­ar­mynd­inni verði kald­hæð­inn og gam­an­sam­ur, eins og áður hefur sést í heim­ild­ar­myndum Moore.



Var á Íslandi í maí

Það vakti nokkra athygli þegar Mich­ael Moore var staddur á Íslandi í maí síð­ast­liðnum. Hann hitti meðal ann­ars Jón Gnarr og Birgittu Jóns­dótt­ur, þing­mann Pírata. Fátt bendir til að heim­sókn hans þá, sem sögð var í fjöl­miðlum vera í tengslum við nýja heim­ild­ar­mynd, hafi tengst heim­ild­ar­mynd­inni sem frum­sýnd verður í Toronto næsta haust.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None