Of stór skammtur af refsistefnu

Ingvar Smári Birgisson
17908257108_685696289e_c.jpg
Auglýsing

Á hverju ári deyja nokkrir Íslend­ingar vegna neyslu of stórs skammts af fíkni­efn­um. Yfir­leitt er þetta ungt fólk sem átti fram­tíð­ina fyrir sér og fyrir mis­tök inn­byrgði svo stóran skammt af fíkni­efnum að það lést.

Síð­ustu ára­tugi hafa slík dauðs­föll ýtt undir þá trú hjá mörgum að taka þurfi harðar á fíkni­efna­sölu og gera fólki erf­ið­ara með að nálg­ast efn­in. Með auknum refs­ingum muni fólk forð­ast fíkni­efn­in, bæði sölu þeirra og neyslu, rétt eins og brennt barn forð­ast eld­inn. En gæti verið að refsi­stefn­an, bann við fram­leiðslu, sölu og neyslu fíkni­efna, bein­línis stuðli að því að fleiri deyi vegna neyslu of stórra skammta?

Fólk tekur best ákvarð­anir þegar það hefur aðgang að upp­lýs­ing­um. Vegna þess að fíkni­efni eru bönn­uð, og fram­leiðsla þeirra og sala er í höndum vafa­samra aðila, fylgir fíkni­efnum engin inni­halds­lýs­ing þegar þau eru keypt né upp­lýs­ingar um hve sterk efnin eru. Því geta t.d. e-pillur verið mis­sterkar eftir því hver selur þær, sem setur fíkni­efna­neyt­endur í stór­hættu­lega stöðu. Skammtur hjá dóp­sala A getur verið mátu­leg­ur, en sami skammtur hjá dóp­sala B getur verið lífs­hættu­leg­ur.  Að sama skapi er ómögu­legt að vita hverju er blandað í efnin til að drýgja þau, en það er mjög ein­stak­lings­bundið hvaða áhrif til­tekin efni hafa á fólk.

Auglýsing

Áfeng­is­bannið er víti til varn­aðar



Í raun erum við bara að end­ur­upp­lifa það sem við upp­lifðum í áfeng­is­bann­inu. Fólk ýmist blind­að­ist eða veikt­ist vegna illa bland­aðs landa og engin leið var fyrir það til að votta gæði heima­bruggs­ins. Bara í ár hefur fjöldi manna í heim­inum lát­ist vegna neyslu illa brugg­aðs áfengis í löndum þar sem áfengi er bann­að. Fíkni­efna­neyt­endur á Íslandi eru jafn illa staddir og áfeng­is­kaup­andi í Saudi-­Ar­ab­íu. Hann hefur tak­mark­aða hug­mynd um hvað hann setur í sig og þarf að setja traust sitt í hendur fíkni­efna­sala.

Bann við fíkni­efnum (eða áfeng­i!) hefur ein­fald­lega ekki þau áhrif að fíkni­efna­neysla hverfi. Ef til vill er neyslan minni í löndum þar sem fíkni­efna­neyt­endur eru mis­kunn­ar­laust teknir af lífi, en alla­jafna eru fíkni­efni aðgengi­leg alstaðar í heim­inum þrátt fyrir bönn. Með því að banna fíkni­efni er fram­leiðslu þeirra og sölu ýtt í und­ir­heima, þar sem réttur „neyt­enda“ er afar tak­mark­að­ur.

Að því leyti gegnir fíkni­efna­bann rík­is­ins því hlut­verki að verja ein­ok­un­ar­stöðu skipu­lagðra glæpa­sam­taka á sölu fíkni­efna, hverra sölu­and­virði skiptir millj­örðum árlega á Íslandi. Varla þarf að taka fram að fram­leið­endur og sölu­menn fíkni­efna er helstu and­stæð­ingar lög­leið­ingar fíkni­efna, enda sitja þeir einir að millj­arða króna hlað­borði.

Ljóst er að það mætti fækka dauðs­föllum vegna fíkni­efna­neyslu með því að lög­leiða fíkni­efn­in. Þegar fólk veit hvað það setur í sig er létt­ara fyrir það að taka upp­lýsta og örugga ákvörð­un. Það er erfitt þegar skipu­lögð glæpa­sam­tök sjá um fram­leiðslu og sölu fíkni­efna.

Ég held því ekki fram að breyt­ingar til frjáls­ræðis muni útrýma dauðs­föllum vegna mis­notk­unar á fíkni­efn­um, ekk­ert frekar en lög­leið­ing áfengis útrýmir ekki dauðs­föllum vegna notk­unar áfeng­is, en það hlýtur að hjálpa að fólk spili ekki rúss­neska rúl­letu í hvert skipti sem það kaupir fíkni­efni.

Höf­undur er for­maður Heimdall­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None