Ólafur Hannibalsson látinn

Olafur.Hannibalsson.jpg
Auglýsing

Ólafur Hanni­bals­son blaða­maður er lát­inn. Hann and­að­ist að heim­ili sínu þriðju­dag­inn 30. júní 2015, 79 ára að aldri.

Ólafur fædd­ist á Ísa­firði 6. nóv­em­ber 1935, sonur Sól­veigar Ólafs­dótt­ur  og Hanni­bals Valdi­mars­son­ar. Hann lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Laug­ar­vatni árið 1956 og stund­aði nám við háskól­ann í Delaware í Banda­ríkj­unum og við hag­fræði­há­skól­ann í Prag í Tékk­landi á árunum 1957 til 1962. Ólaf­ur ­starf­aði hjá Loft­leiðum í New York, var rit­stjóri Frjálsrar þjóðar 1964-1970, með árs­hléi 1968 þegar hann vann að haf­rann­sókn­um. Hann var skrif­stofu­stjóri ASÍ 1971-1977. Ólafur var vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­fjarða­kjör­dæmi 1995-1999.

Um tíu ára skeið til árs­ins 1987 var Ólafur bóndi í Sel­ár­dal og síðan blaða­mað­ur, rit­höf­undur og rit­stjóri. Ásamt Jóni Hjalta­syni og Hjalta Ein­ars­syni skrif­aði hann 50 ára sögu Sölu­mið­stöðvar Hrað­frysti­hús­anna sem út kom 1997. Hann þýddi Sögu þorsks­ins eftir Mark Kur­l­an­sky, og skráði ásamt konu sinni Sól­ar­meg­in, end­ur­minn­ingar Her­dísar Egils­dóttur kenn­ara. Síð­ustu árin vann Ólafur að Djúp­manna­tali, skrá ábú­enda við Ísa­fjarð­ar­djúp frá 1801 og niðja þeirra, sem nú er búið til prent­un­ar.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá aðstand­endum segir að Ólafur hafi látið sig þjóð­mál miklu varða. Hann hafi verið ann­ál­aður penni, ritað ótal greinar og haldið útvarps­er­indi um inn­lend og erlend mál­efni. Hann tók virkan þátt í aðgerð­um, svo sem mót­mælum Þjóð­ar­hreyf­ing­ar­innar gegn fjöl­miðla­lög­unum 2004, og gegn stuðn­ingi Íslands við inn­rás Banda­ríkja­hers í Írak, m.a. með birt­ingu heil­síðu­aug­lýs­ingar í New York Times í árs­byrjun 2005.

Kona Ólafs er Guð­rún Pét­urs­dótt­ir, líf­eðl­is­fræð­ing­ur. Dætur þeirra eru Ásdís og Marta. Börn Ólafs af fyrra hjóna­bandi eru Hugi, Sól­veig og Krist­ín.

Rit­stjórn Kjarn­ans sendir fjöl­skyldu Ólafs sam­úð­ar­kveðj­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None