Safnar fé til að segja ótrúlega sögu eins smells undursins Chumbawamba

dunston.jpg
Auglýsing

Þótt það átti sig ekki allir á hvaða hljóm­sveit Chumbawamba var þá hafa lík­ast til flestir sem voru með aldur til að kom­ast inn á skemmti­staði undir lok síð­ustu aldar dansað og sungið með ofursmell­inum Tubt­hump­ing mun oftar þeir kæra sig um að muna eft­ir. Eða heyrt hann þegar þeir spil­uðu FIFA World Cup ´98 tölvu­leik­inn af áfergju, þar sem lagið lék stórt hlut­verk.

https://www.youtu­be.com/watch?v=R­TjC6rx­Hz8g

Það sem fæstir vita er að á bak­við þetta eins smells undur er stór­merki­leg saga um anar­kista, aðgerð­ar­sinna og hús­töku­fólk sem höfðu verið að í tæpa tvo ára­tugi áður en þeir slógu allt í einu í gegn með þessu óvænta, og að mati margra óþol­andi, popp­lagi.

Auglýsing

Nú ætlar Dunstan Bruce, fyrrum for­sprakki sveit­ar­inn­ar, að gera heim­ild­ar­mynd um hina ósögðu sögu Chumbawamba. Myndin heitir auð­vitað „I Get Knocked Down“ eftir fræg­ustu lín­unni úr Tubt­hump­ing.  Og hann er þegar búinn að safna fyrir henni á hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni Kickstarter.

Gáfu mest alla pen­ing­anna sína



Í kynn­ing­ar­mynd­bandi vegna söfn­un­ar­innar segir Bruce frá því að þótt flestir muni ein­ungis eftir honum sem söngv­ar­anum með aflit­aða hárið, mask­ar­ann og eyrna­hring­ina ­sem sem söng „I get knocked down/But I get up aga­in/You're never going to keep me down“. Hann segir þó að vel­gengni þess lags hafi ein­ungis verið topp­ur­inn á mjög stórum ísjaka sem sé stór­kost­lega fyndin saga Chumbawamba sem hófst upp úr 1980 og lauk ekki fyrr en árið 2012.

https://d2pq0u4un­i88oo.clou­dfront.­net/project­s/1844056/vid­eo­-555482-h264_hig­h.mp4

Bruce lofar stór­skemmti­legri nið­ur­stöðu nái hann að gera mynd­ina. Það er nefni­lega að mörgu að taka hjá Chumbawamba sem fólk hefur almennt enga hug­mynd um. Til dæmis sagan á bak­við það þegar hljóm­sveit­ar­með­limir helltu vatni yfir ráð­herra Verka­manna­flokks­ins á Brit-verð­launa­há­tíð­inni 1998, háfu nán­ast alla pen­ing­anna sem þeir græddu þegar frægð­ar­sól þeirra steig hæst til að fjár­magna allskyns andóf og höfn­uðu 1,5 milljón dala til­boði frá Nike, sem vildi nota lagið fræga í aug­lýs­ingu, 30 sek­úndum eftir að það var sett fram.

Meðlimir Chumbawamba helltu vatni yfir John Prescott á Brit-verðlaunahátíðinni árið 1998. Með­limir Chumbawamba helltu vatni yfir John Prescott á Brit-verð­launa­há­tíð­inni árið 1998.

Bruce er þegar búin að ná því mark­miði sínu að safna 40 þús­und pundum í gegnum Kickstarter. Alls hafa, þegar þetta er skrif­að, tæp­lega 1.200 manns sam­þykkt að láta fé renna til verk­efn­is­ins. Og enn er tími til að bæta við þar sem söfn­unin klár­ast ekki fyrr en á morg­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None