Samfylkingin mælist með minnsta fylgi sitt í sögunni - Píratar með þriðjungsfylgi

piratar-2.jpg
Auglýsing

Sam­fylk­ingin mælist með 9,3 pró­sent fylgi í nýj­ustu skoð­ana­könnun MMR sem birt var í dag. Það er minnsta fylgi sem hún hefur nokkru sinni mælst með. Píratar bæta lít­il­lega við sig og mæl­ast með 33,2 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur nú mælst með yfir 30 pró­sent fylgi í fimm könn­unum MMR í röð. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig 0,5 pró­sentu­stigum og mælist með 23,8 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir 0,6 pró­sentu­stigum við sig og mælist nú með 10,6 pros­ent fylgi. Vinstri grænir myndu fá tólf pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag en Björt fram­tíð heldur áfram að hrapa, og mælist með 5,6 pró­sent fylgi.

Könn­unin var fram­kvæmd dag­anna 24. til 30. júní 2015.

 

Auglýsing



 

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dal­ar á ný eftir að hafa tekið lít­inn kipp upp á við í síð­ustu könnun MMR, sem var birt 24. júní. Nú styðja ein­ungis 30,4 pró­sent aðspurðra rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar. Í síð­ustu könnun mæld­ist stuðn­ingur við hana 31,9 pró­sent. Til sam­an­burðar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, sem sat við völd á árunum 2009 til 2013, 31,5 pró­sent þegar hún lét af störf­um. Þegar sú rík­is­stjórn hafði setið í hálft kjör­tíma­bil mæld­ist stuðn­ingur við hana 31,5 pró­sent í könnun MMR, eða lítið eitt meiri en stuðn­ingur við núver­andi rík­is­stjórn er á sama tíma.

Sam­fylk­ingin í veru­legum vand­ræðum



Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur hríð­fallið und­an­farin miss­eri og flokk­ur­inn virð­ist vera í miklum vand­ræðum við að höfða til kjós­enda. Flokk­ur­inn fékk 12,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ing­um, sem þótti afleit nið­ur­staða, og tap­aði meira fylgi á milli kosn­inga en nokkur flokkur í sögu lands­ins hefur gert. Fyrir tæpu ári síðan í ágúst 2014, virt­ist Sam­fylk­ingin vera að ná sér á strik og fylgið mæld­ist í kringum 20,3 pró­sent. Síðan þá hefur það verið á hraðri nið­ur­leið og fór í fyrsta sinn undir tíu pró­sent í könn­unum MMR í þeirri sem var birt í dag, en fylgi Sam­fylk­ingar mælist nú 9,3 pró­sent. Miðað við það er Sam­fylk­ingin næst minnsti flokkur lands­ins.

Líkt og und­an­farna mán­uði þá eru hinir flokk­arnir sem taldir eru til kerf­is­flokka íslenskra stjórn­mála einnig í miklum vand­ræðum við að ná til kjós­enda. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem er sögu­lega mælist nán­ast alltaf stærsti flokkur lands­ins, er langt frá því að mæl­ast í þeim hæðum sem hann er van­ur. Fylgi flokks­ins mælist nú 23,8 pró­sent,­sem er tölu­vert undir kjör­fylgi flokks­ins í síð­ustu kosn­ing­um, þegar hann hlaut næst­verstu útkomu sína í sög­unni.

Sömu sögu er að segja af Fram­sókn­ar­flokkn­um, sem leiðir sitj­andi rík­is­stjórn. Flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum en mælist nú 10,6 pró­sent fylgi. Fylgi hvor­ugs stjórn­ar­flokks­ins hefur auk­ist mikið eftir að þeir kynntu viða­mikla áætlun sína um losun hafta í byrjun júní­mán­að­ar.

Ekki mjög björt fram­tíð hjá Bjartri fram­tíð



Sá flokkur sem er að sýna einna mestan stöð­ug­leika í könn­unum allra þeirra sem kanna fylgi stjórn­mála­flokka eru Vinstri græn­ir. Fylgi þeirra mælist stöðugt um og yfir tíu pró­sent og tekur lít­inn kipp upp á við í nýj­ustu könnun MMR. Þar mælist fylgi þeirra slétt tólf pró­sent.

Þeir tveir flokkar sem komu nýir inn á Alþingi eftir kosn­ing­arnar vorið 2013 eru hins vegar að upp­lifa tvo algjör­lega ólíka veru­leika. Pírat­ar, sem rétt skriðu inn á þing og fengu þrjá þing­menn, fara með him­in­skautum og mæl­ast með 33,2 pró­sent fylgi. Það sem vekur einna mest athygli er hversu stöðugt þetta háa fylgi flokks­ins hefur verið í und­an­förnum könn­un­um. Hjá MMR hefur hann nú mælst með yfir 3o pró­sent í fimm könn­unum í röð og yfir 20 pró­sent í sjö könn­unum í röð.

Hinn nýji flokk­ur­inn, Björt fram­tíð, er að sama skapi í frjálsu falli og mælist með lang­minnst fylgi þeirra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, eða 5,6 pró­sent. Ef kosið yrði í dag myndi Björt fram­tíð rétt svo skríða yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn sem þarf til að ná inn þing­manni. Þetta er mik­ill við­snún­ingur frá stöðu flokks­ins í könn­unum fyrir ári síð­an. Í lok júní 2014 mæld­ist fylgi flokks­ins 21,8 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None