Wikileaks: Íslenska lögreglan forvitnaðist um njósnaforrit fyrir síma hjá Hacking Team

15175523421_f0c14443c9_z.jpg
Auglýsing

Upp­ljóstr­un­ar­síðan Wiki­leaks hefur birt meira en milljón tölvu­pósta frá ítalska fyr­ir­tæk­inu Hack­ing Team. Fyr­ir­tæk­ið ­sér­hæfir sig í njósn­a­for­rit fyrir tölvur og snjall­síma og er mjög umdeilt fyrir að fram­leiða for­rit sem gerir aðilum kleyft að rjúfa frið­helgi einka­lífs og brjóta á mann­rétt­indum fólks á net­inu.

Í tölu­vpóst­unum má finna sam­skipti milli rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins Ragn­ars Ragn­ars­sonar hjá tölvu­rann­sókna- og raf­einda­deild lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og starfs­manns Hack­ing Team, þar sem íslenska lög­reglan spyrst fyrir um njósn­a­for­rit fyrir snjall­síma. Reykja­vík Grapevine greindi fyrstur íslenskra fjöl­miðla frá mál­inu.

Tölvu­pósts­sam­skiptin eru frá árinu 2011, en sam­kvæmt gögn­unum frá Wiki­leaks hófust þau þegar starfs­maður Hack­ing Team sendi íslenska rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­inum tölvu­póst í lok maí það ár, þar sem hann greinir frá því að fyr­ir­tækið muni taka þátt í sölu­sýn­ingu.

Auglýsing

Í tölvu­póst­inum greinir starfs­mað­ur­inn frá því að fyr­ir­tækið muni kynna nýtt njósn­a­for­rit fyrir PC-­tölvur og snjall­síma á sýn­ing­unni, sem geti fylgst leynt með sam­skiptum meðal ann­ars í gegnum Skype og MSN, tekið afrit af skrám, ljós­myndum og virkjað hljóð­nema til að hlera úr vasa. For­ritið er kallað RCS, eða Remote Control System.

Nokkrum dögum síðar sendi íslenski rann­sókn­ar­lög­reglu­maður tölvu­póst á starfs­mann Hack­ing Team og óskar frek­ari upp­lýs­inga um lausnir fyr­ir­tæk­is­ins til að fylgj­ast með notkun snjall­síma. Starfs­mað­ur­inn sendir þá lög­reglu­mann­inum tölvu­póst þar sem hann til­greinir að RSC virki til að „njósna“ um flestar gerðir snjall­síma.

Svarið hefur greini­lega ekki verið full­nægj­andi því að lög­reglu­mað­ur­inn sendir starfs­manni Hack­ing Team aftur tölvu­póst og spyr: „Ég er að leita eftir ítar­legri upp­lýs­ing­um, sér­stak­lega er varða lausnir fyrir snjall­síma, verð o.s.frv. Getur far­síma­kerfið náð voip (Voice Over Inter­net Protocol) sam­skipt­u­m?“

VoIP eru meðal ann­ars síma­sam­skipti manna á milli á net­inu, eins og til dæmis í gegnum for­rit eins og Skype.

Í svari starfs­manns Hack­ing Team við fyr­ir­spurn íslenska rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins kemur fram að ekki sé hægt að hlera VoIP sam­skipti, en ­fyr­ir­tækið geti mögu­lega unnið slíka lausn sé þess ósk­að. Þá óskar starfs­mað­ur­inn eftir því að lög­reglu­mað­ur­inn sendi sér örygg­is­kóða óski hann eftir frek­ari upp­lýs­ing­um. „Eins og þú getur ímyndað þér þá yrðu gögnin sem ég myndi senda þér mjög við­kvæm,“ eins og segir í tölvu­póst­in­um.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None