Aðgangur Bjarna að Ashley Madison var uppfærður árin 2011 og 2013

Auglýsing

Aðgangur Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á vef­síð­unni Ashley Mad­i­son var upp­færður árið 2011 og aftur árið 2013, sam­kvæmt því sem fram kemur í frétt Stund­ar­innar. Eig­in­kona Bjarna, Þóra Mar­grét Bald­vins­dótt­ir, sagði í yfir­lýs­ingu á Face­book í hádeg­inu í dag að þau hjónin hefðu skráð sig saman inn á vef­inn árið 2008 en aldrei farið inn á hann síðan þá. Gögnin sem lekið var af síð­unni sýna hins vegar að þetta sé ekki rétt, sam­kvæmt Stund­inni.

Reikn­ing­ur­inn var búinn til rétt fyrir mið­nætti þann 13. sept­em­ber 2008, þegar Bjarni var þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Sam­kvæmt gögn­unum sem Stundin vísar í var reikn­ing­ur­inn upp­færður þremur árum síð­ar, þann 21. októ­ber 2011, og svo aftur þann 25. jan­úar árið 2013.

Þóra Mar­grét sagð­i að þeim hjónum hafi borist margar ábend­ingar um að nú sé tals­vert rætt manna í milli að gam­alt net­fang Bjarna teng­ist gögn­un­um. Net­fangið sem um ræðir er bjarni­ben@n1.­is.

Auglýsing

Þóra segir að þau hjónin hafi heyrt um þennan „um­deilda vef í erlendum fréttum fyrir um 7 árum (2008). Í fram­haldi af því skoð­uðum við vef­inn fyrir for­vitn­issakir, en til þess þurfti að fylla út þar til gert form, skrá net­fang, erlent póst­númer og fleira sem við gerðum í algjörum hálf­kær­ingi og af létt­úð,“ skrifar Þóra.

Hún segir þau hjónin aldrei síðan hafa farið inn á vef­inn og ekki hafi verið greitt fyrir skrán­ingu eða aðgang að hon­um. „Þessi heim­sókn hefur ekki leitt til sam­skipta við nokkurn mann, hvað þá trún­að­ar­brots af neinum toga. Ekki er allt sem sýn­ist á net­in­u,“ skrifar hún.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef­síð­unni All about Ashley, þar sem hægt er að fletta upp not­end­um, kemur fram að not­enda­nafn Bjarna hafi verið IceHot1. Heim­il­is­fangið sem skráðar var var í Bradenton í Flór­ída í Banda­ríkj­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None