Hvalur hf. tapaði milljarði á hvalveiðum en hagnaðist um þrjá milljarða króna

hvalur.jpg
Auglýsing

Hvalur hf. hagn­að­ist um rúma þrjá millj­arða króna á síð­asta rekstr­ar­ári, sem náði frá 1. októ­ber 2013 til 30. sept­em­ber 2014. Tekjur félags­ins af sölu hval­af­urða nam rúm­lega millj­arði króna á þessu tíma­bili en kostn­aður vegna rekst­urs hval­veiði­skipa og útgerðar í Hval­firði var tvö­falt hærri, eða rúm­lega tveir millj­arðar króna. Rekstr­ar­árið á undan voru tekjur af hval­kjöts­sölu svip­aðar og í fyrra en kostn­að­ur­inn vegna hval­veiða nam þá tæp­lega 1,6 millj­arði króna.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem skilað var til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra fyrir versl­un­ar­manna­helgi. Stærsti eig­andi Hvals hf. er Fisk­veiði­hluta­fé­lagið Ven­us. Það er að stórum hluta í eigu Krist­jáns Lofts­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Hvals hf.

Auglýsing


Hvalur hf. rekur hval­stöð­ina í Hval­firði, gerir út hval­veiði­skip og vinnur afurð­irn­ar. Fram kemur í árs­reikn­ingnum að á árinu 2013 voru veiddar 134 lang­reyðar og 137 árið 2014.



Þrátt fyrir að veiði á lang­reyðum hafi skilað um millj­arðs króna tapi á síð­asta rekstr­ar­ári þá hagn­að­ist félagið um þrjá millj­arða króna. Tekjur voru 4,3 millj­arð­ar, að langstærstum hluta vegna eign­ar­hluta Hvals hf. í félag­inu Vogun hf. Það félag á þriðj­ungs­hlut í HB Granda, einu stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Íslands. Tekjur af óbeinum eign­ar­hlut Hvals í HB Granda nam 3,2 millj­örðum króna á rekstr­ar­ár­inu.



Í árs­reikn­ingi Hvals hf. er lagt til að um 800 millj­ónir greið­ist til hlut­hafa í formi arðs. Hlut­hafar eru 109 tals­ins, flestir ein­stak­lingar með eign­ar­hlut innan við eitt pró­sent. Eignir félags­ins í lok sept­em­ber 2014 voru að and­virði 23,7 millj­arðar króna og eigið fé var 15,7 millj­arð­ar. Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins var því 65,99 pró­sent í lok rekstr­ar­árs­ins.



Í skýrslu stjórnar í árs­reikn­ingnum er farið yfir hval­veiðar félags­ins á síð­ustu árum. Hval­veiðar hófust að nýju árið 2006 eftir átján ára hlé. Það ár veiddi Hvalur hf. sjö lang­reyðar af kvóta sem taldi níu lang­reyð­ar. Árið 2009 var gefin út reglu­gerð um að næstu fimm árin yrði árlega heim­ilt að veiða þann fjölda lang­reyða sem kveðið er á um í veiði­ráð­gjöf Haf­rann­sókn­ar­stofn­unn­ar. Sum­arið 2009 veiddi Hvalur hf. 125 lang­reyðar og sum­arið eftir veiddi það 148 lang­reyð­ar. Ekki voru stund­aðar hval­veiðar næstu tvö ár. Þær hófust að nýju í júní 2013 og veidd­ust þá 134 lang­reyðar en 137 í fyrra.

Tveggja millj­arða farmur á leið yfir hafið

Greint var frá því í dag að virði farms­ins á flutn­inga­skip­inu Winter Bay, sem nú siglir norð­ur­aust­ur­leið um Íshafið norðan Rúss­lands á leið til Jap­an, er um tveir millj­arðar króna. Farm­ur­inn er hval­kjöt og hval­spik úr Hval­stöð­inni í Hval­firði. Krist­ján Lofts­son stað­festi við norskan fjöl­miðil í gær hvert virði farms­ins er en alls eru um 1.800 tonn af hval­kjöti og hval­spiki um borð. Afurð­irnar eru frá ver­tíð síð­asta sum­ars.

Hval­veiðar Íslend­inga hafa sætt mik­illi gagn­rýni frá því að þær hófust á ný, bæð­i eru þær umdeildar inn­an­lands og gagn­rýndar af leið­togum ann­arra ríkja, meðal ann­ars Banda­ríkj­anna. Sam­tök gegn hval­veiðum hafa beitt sér gegn hval­veiðum Hvals hf. og reynt að koma í veg fyrir að hval­kjötið og hval­spikið kom­ist leiðar sinnar til Jap­an.Í við­tal­inu við norska sjáv­ar­út­vegs­blaðið gagn­rýnir Krist­ján harð­lega þau sam­tök sem hafa beitt sér gegn hval­veið­um. „Ég forð­ast ákveðið að nefna þessi sam­tök nöfnum sínum og gildir þá einu í hvaða sam­hengi það er. Þau eru á móti öllu, líka því sem er lög­legt og nota gjarnan ólög­legar aðferðir til að koma sinni sýn á fram­færi. Þau lifa á athygl­inni sem þau fá í fjöl­miðlum og ég vil ekki hjálpa til við það með því að nefna nöfn þeirra á opin­berum vett­vang­i,“ segir Krist­ján, í þýð­ingu Skessu­horns sem greindi frá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None