Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, skoðar bann á innflutningi frá Íslandi

medveded.jpg
Auglýsing

Dimítrí Med­vedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, mun sjálfur stýra rann­sókn á því hvort Rúss­land eigi að grípa til banns á inn­flutn­ingi frá sjö löndum sem stutt hafa áfram­hald­andi við­skipta­þving­anir Evr­ópu­sam­band­ands­ins, Banda­ríkj­anna og Kanada á Rúss­land. Ísland er á meðal þeirra landa. Med­vedev skip­aði fyrir um það í gær að rann­sóknin ætti að hafa fram. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir Gunn­ari Braga Sveins­syni utan­rík­is­ráð­herra að þetta valdi auð­vitað áhyggjum og að verið sé að reyna að afla frek­ari upp­lýs­inga um hversu mikil alvara sé í mál­inu hjá Rúss­um. "Við höfum haft áhyggjur af því allan tím­ann að lenda á við­skipta­bann­lista hjá Rúss­um. Þessar fréttir eru ekki til þess fallnar að draga úr áhyggjum okk­ar."

Jón Garðar Helga­son, for­mað­ur­ ­Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, segir við Morg­un­blaðið að við­skipta­bannið hafi sett mikla hags­muni Íslands í upp­nám. Alls nemur útflutn­ingur sjáv­ar­fangs til Rúss­lands frá Íslandi á bil­inu 21 til 25 millj­örðum króna á ári. Þar munar mest um frosnar loðnu­af­urð­ir, mak­ríl og síld.

Auglýsing

Gunnar_bragi "Við höfum haft áhyggjur af því allan tím­ann að lenda á við­skipta­bann­lista hjá Rúss­um. Þessar fréttir eru ekki til þess fallnar að draga úr áhyggjum okk­ar," segir Gunnar Bragi Sveins­son.

 

Hefur staðið tæpt áður



Þetta er ekki í fyrsta sinn á und­an­förnum mán­uðum sem Íslend­ingar ótt­ast að Rússar loki fyrir inn­flutn­ing héðan vegna stuðn­ings Íslands við við­skipta­þving­anir gegn land­inu vegna aðgerða þess í Úkra­ínu. 23. októ­ber 2014 greindi Kjarn­inn frá því að fundað hefði ver­ið ­með­ hags­muna­að­ilum í sjáv­ar­út­vegi í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu vegna stöð­unnar sem komin er upp­ milli Íslands og Rúss­lands. Rússar höfðu þá hug á að loka á við­skipti við Ísland, og útvíkka þannig inn­flutn­ings­bann á mat­vælum til Rúss­lands frá Vest­ur­lönd­um,.

Miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, en heild­arutan­rík­is­við­skipti við Rúss­land árinu 2013 námu ríf­lega 20 millj­örðum króna. Þar af voru um 18 millj­arðar vegna við­skipta með mak­ríl, en um 47 pró­sent af öllum mak­ríl sem veiddur var við Ísland árið 2013 fór inn á Rúss­lands­mark­að.

Á þessum tíma höfðu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fengið upp­lýs­ingar um að lokað yrði á við­skipi við Ísland, ekki síst vegna stuðn­ings Íslands við hertar póli­tískar og efna­hags­legar aðgerðir gegn Rúss­landi, sem rekja má rekja til póli­tískrar spennu og aðgerða Rússa í Úkra­ínu. Af þessu varð þó ekki.

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu er sú að hinn 15. októ­ber  2014 birti Evr­ópu­ráð­ið til­kynn­ingu, um að Ísland, Makedón­ía, Svart­fjalla­land, Alban­ía, Liechten­stein, Nor­eg­ur, auk Úkra­ínu og Georg­íu, stilltu sér upp með Evr­ópu­sam­bands­ríkj­um, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar við­skipta­þvin­gangir gegn Rúss­um.  Ný­verið birti Evr­ópu­sam­bandið síðan frétta­til­kynn­ingu um áfram­hald­andi við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum vegna aðgerða þeirra í Úkra­ínu. Ísland styður áfram þær aðgerðir líkt og það hefur gert frá byrj­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None