Ráðherra hitti sendiherra Rússlands - Kaupa engan fisk nema í dós

18603248525_d05289fc37_z-1.jpg
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, Anton V. Vasiliev rædd­ust við á óform­legum fundi í dag. Farið var yfir stöð­una sem uppi er í sam­skiptum ríkj­anna, vegna ákvörð­unar Rússa um að setja inn­flutn­ings­bann á íslenska mat­vöru.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Fram kemur að ráð­herra hafi á fund­inum bent á það að bann Rússa væri mun þyngra högg fyrir íslenskt efna­hags­líf, en ann­arra þjóða. Helgist það einkum af því að mikið af sjáv­ar­af­urðum hafi verið flutt út til Rúss­lands á und­an­förnum árum.

Auglýsing


„Sendi­herr­ann sagði að ákvörð­unin frá því í morg­un, beind­ist ekki sér­stak­lega gegn Íslandi, heldur væru Rússar að svara í sömu mynt fyrir þær aðgerðir sem beitt hefði verið gegn þeim. Aðgerðir sem Rússar telji ólög­leg­ar. Sendi­herr­ann sagð­ist ekki hafa upp­lýs­ingar um hversu víð­tækt inn­flutn­ings­bannið væri, en það væri tíma­bundið og nauð­syn­legt að vinna að sam­eig­in­legri lausn,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Ekki hægt að mark­aðs­setja sjáv­ar­af­urðir

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi sam­tímis frá sér til­kynn­ingu í dag þar sem íslensk stjórn­völd eru sögð harma ákvörðun rúss­neskra yfir­valda að bæta Íslandi á lista yfir lönd sem sæta inn­flutn­ings­banni til Rúss­lands. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins liggur fyrir að íslenskar vörur verði ekki toll­af­greiddar og hætta sé á að vörum verði fargað á landa­mær­un­um.



„Þetta eru gríð­ar­leg von­brigði. Við höfum leitað allra leita til að útskýra afstöðu okkar fyrir rúss­neskum stjórn­völdum og þá hags­muni sem undir eru,“ segir Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra í til­kynn­ing­unni.



Ljóst er að bannið felur í sér að íslenskum fyr­ir­tækjum verður ekki lengur unnt að mark­aðs­setja sjáv­ar­af­urðir í Rúss­landi auk þess sem bannið tekur til land­bún­að­ar­vara að frá­töldu lamba­kjöti, ærkjöti, hrossa­kjöti og nið­ur­soðnu fisk­meti í dós­um.



Ísland mun halda áfram því sam­tali sem ráð­herrar og emb­ætt­is­menn hafa átt við Rússa á síð­ustu vikum til að draga úr áhrifum þess­arar ákvörð­un­ar.



Ísland, Alban­ía, Liechten­stein, Svart­fjalla­land og Úkra­ína bæt­ast nú í hóp þar sem fyrir eru Dan­mörk, Sví­þjóð, Finn­land, Þýska­land, Bret­land, Írland, Frakk­land, Spánn, Portú­gal, Ítal­ía, Holland, Belgía, Lúx­em­borg, Malta, Grikk­land, Kýp­ur, Aust­ur­ríki, Pól­land, Ung­verja­land, Eist­land, Lett­land, Lit­há­en,Tékk­land, Slóvakía,Sló­ven­ía, Rúm­en­ía, Búlgar­ía, Króa­tía, Banda­rík­in, Nor­eg­ur, Kanada og Ástr­al­ía.



 *At­huga­semd rit­stjórn­ar: Í upp­haf­legri frétt sagði í fyr­ir­sögn að Rússar kaupi engan fisk á meðan inn­flutn­ings­bann er í gildi. Það er ekki nákvæmt, því í til­kynn­ing­unni frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að ­fisk­meti í dósum verð­ur­ und­an­þegið bann­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None