Rekstur Reykjavíkurborgar mun þyngri en búist var við

14471454313_5d118e43e8_z.jpg
Auglýsing

Rekstr­ar­nið­ur­staða sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar (A og B hluta) var jákvæð um 303 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Það er langtum minni afgangur en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir, en í þeim var gert ráð fyrir 2.141 milljón króna afgangi á tíma­bil­inu. Ástæður fyrir slæmu hálfs­árs­upp­gjöri eru sagðar minni hagn­aður Orku­veitu Reykja­víkur vegna lækk­andi álverðs og einnig lak­ari afkomu A-hluta borg­ar­innar en áætlun gerði ráð fyr­ir. Þar ræður hækkun launa­kostn­aðar og minni sala á bygg­ing­ar­rétti mestu. Alls nam tap af rekstri A-hluta rúmum þremur millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg um rekst­ur­inn á fyrri hluta árs.

„Nið­ur­staða sex mán­aða upp­gjörs­ins kemur ekki á óvart og und­ir­strikar að það er áskorun að eiga fyrir nýgerðum kjara­samn­ingum og mik­il­vægi þess að árangur náist í end­ur­mati á mála­flokki fatl­aðs fólks og dag­gjöldum hjá hjúkr­un­ar­heim­il­um, en um millj­arð vantar upp á að ríkið láti þá fjár­muni fylgja sem þarf vegna þessa. Mikil upp­bygg­ing framundan léttir þó undir og við munum taka skipu­lega og fast á fjár­mál­un­um, líkt og und­an­farin ár,“ segir Dagur B.Egg­erts­son borg­ar­stjóri í til­kynn­ingu.

Auglýsing

Mikið tap af rekstri A-hluta



Tap af rekstri A-hluta borg­ar­innar nam 3.038 millj­óum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, en áætl­anir gerðu ráð fyrir að hún yrði nei­kvæð um 1.865 millj­ónir á tíma­bil­inu. Til A- hluta tekst starf­semi sem að hluta eða öllu leyti er fjár­mögnuð með skatt­tekj­u­m. Verri afkoma er eins og fyrr greinir rakin til læk­gri tekna af sölu bygg­ing­ar­réttar og sölu fast­eigna, sem var 552 millj­ónum króna undir áætl­un, og hækkun launa­kostn­aðar umfram áætlun um 403 millj­ónir króna.

Heild­ar­eignir sam­stæðu Reykja­vík­ur­borg­ar, það eru A og B hlut­ar, námu í lok júní sam­tals 513.207 millj­ónum króna. Heild­ar­skuldir ásamt skuld­bind­ingum námu 282.812 millj­ónum króna og eigið fé var 220.395 millj­ónir króna. Eig­in­fjár­hlut­fall er 42,9 pró­sent en var 41, pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Til B-hluta telj­ast fjár­hags­lega sjálf­stæð fyr­ir­tæki sem að hálfu eða meiri­hluta eru í eigu borg­ar­inn­ar, en rekstur þeirra er að stofni til fjár­magn­aður með þjón­ustu­tekj­um. Fyr­ir­tækin eru: Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Orku­veita Reykja­vík­ur, Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Jör­undar ehf.

Sjálf­stæð­is­menn ósáttir



Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­far birt­ingu upp­gjörs­ins í dag og benti á að Fjár­mála­skrif­stofa borg­ar­innar segi í skýrslu sinni að þessi slæma nið­ur­staða kalli á við­brögð í fjár­mála­stjórn borg­ar­inn­ar. „Mik­ill þungi er í þeim orðum fjár­mála­skrif­stof­unnar og und­ir­strikar þörf þess að mark­viss vinna verði sett strax af stað við að taka á rekstr­ar­vanda­málum Reykja­vík­ur­borg­ar. Við afgreiðslu árs­reikn­ings árs­ins 2014 lögðu borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að slík vinna færi strax af stað,“ segja sjálf­stæð­is­menn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None