Sautján prósent af tekjum HB Granda komu frá Rússlandi í fyrra

Grandi_fish_processing_conveyor_belt3_2011.jpg
Auglýsing

Árið 2014 stöf­uðu um sautján pró­sent tekna HB Granda frá við­skiptum við rúss­neska aðila. Gróf­lega áætlað mun inn­flutn­ings­bann Rúss­lands á mat­vöru frá Íslandi lækka tekjur félags­ins um um það bil tíu til fimmtán millj­ónir evra á árs­grund­velli. Félagið á nú um 6 millj­ónir evra í útistand­andi kröfum í Rúss­landi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá HB Granda til Kaup­hall­ar­innar. Tekið er fram að erfitt sé að meta fjár­hags­leg áhrif banns­ins á HB Granda. Tíu til fimmtán millj­ónir evra eru jafn­virði um 1.470 til 2.200 millj­óna króna.

Dmi­try Med­vedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti í morgun að Ísland hafi ver­ið bætt við á lista yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vörur frá. Íslandi hefur þar með verið bætt á lista með Evr­ópu­sam­bands­lönd­um, Banda­ríkj­unum og Ástr­alíu en þessi lönd standa saman að við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi vegna átak­anna í Úkra­ínu.

Auglýsing

„Mik­il­vægi Rúss­lands­mark­aðar í rekstri HB Granda hefur auk­ist veru­lega á und­an­förnum árum. Árið 2014  stöf­uðu til að mynda um 17% tekna félags­ins frá við­skiptum við rúss­neska aðila. Stað­geng­is­mark­aðir fyrir helstu afurðir sem seldar eru til Rúss­lands eru ekki til stað­ar. Það blasir því við að muni inn­flutn­ings­bann Rúss­lands ná til inn­fluttra sjáv­ar­af­urða frá Íslandi mun tölu­verður hluti þess afla félags­ins sem unn­inn er í frystar afurðir á Rúss­lands­markað verða unnin í mjöl og lýsi. Við það mun vinna við afl­ann minnka og störfum við vinnsl­una fækka svo um munar auk þess sem verð­mæti afl­ans mun lækka tölu­vert,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None