Segir loftlagsráðstefnuna í París líklega mikilvægasta fund mannkynnssögunar

kristinvala.jpg
Auglýsing
Kristín Vala Ragn­ars­dótt­ir, pró­fessor í sjálf­bærni­vís­indum við Háskóla Íslands, segir að al­þjóð­lega lofts­lags­ráð­stefnan í París í des­em­ber sé lík­lega mik­il­væg­asti fundur mann­kyns­sög­un­ar. Ef það náist ekki árangur á henni þá muni mann­kynið að öllum lík­indum missa tæki­færið til að hafa áhrif á loft­lags­mál úr hönd­um ­sér. Þetta kom fram í við­tali við Krist­ínu Völu í Helg­ar­út­gáf­unni á Rás 2 í dag. 











Kristín Vala hefur á síð­ustu árum stýrt stórum rann­sókn­ar­verk­efnum sem snúa að sjálf­bærni, meðal ann­ars verk­efnis sem nýtur styrks frá Evr­ópu­sam­band­inu þar sem jarð­vegur er rann­sak­aður sem kerfi. Í þætt­inum sagði hún að ef það næst ekki árangur á fund­inum í París gæti stór hluti jarð­ar­innar orðið óbyggi­legur fyrir mann­inn í lok þess­arar ald­ar­. „Ég held í raun­inni að þessi fundur sem verður í París í des­em­ber sé lík­lega mik­il­væg­asti fundur sem hald­inn hafi verið í heim­inum okkar alla tíð. Ef við náum ekki árangri þar, hvernig við ætlum að minnka útblást­ur, þá erum við lík­leg­ast búin að missa lofts­lags­málin út úr hönd­unum á okk­ur. Þá förum við út í fleiri og fleiri jákvæða hringi sem valda meiri og meiri hlýn­un. Í stað­inn fyrir að við endum í tveimur gráðum með því að minnka gríð­ar­lega mikið útblást­ur, þá förum við kannski í fimm, sex gráður í lok þess­arar ald­ar. Þá verður stór hluti jarð­ar­innar óbyggi­legur fyrir mann­inn. Við erum þegar farin að sjá allt þetta streymi fólks frá hinum ýmsu Afr­íku­ríkj­um. Þetta eru ríki þar sem er mikið þjóð­fé­lags­legt ójafn­vægi vegna lofts­lags­breyt­inga."

Kristín Vala skrifar reglu­lega álits­greinar á Kjarn­ann, meðal ann­ars um umhverf­is­mál og sjálf­bærni.

Auglýsing

Miklar vonir bundnar við Par­ís­ar­ráð­stefn­una



Miklar vonir eru bundnar við lofts­lags­ráð­stefn­una í París en þar er mark­miðið að búa til laga­lega bind­andi þver­þjóð­legt sam­komu­lag um lofts­lags­mál­in. Und­ir­bún­ingur fyrir ráð­stefn­una hefur staðið und­an­farin ár, ekki síst með­ ­stefnu­mótun ein­stakra þjóða í orku­mál­u­m. ­Ljóst er að mik­ill vilji virð­ist vera hjá stórum leik­endum á alþjóða­svið­inu til að bregð­ast við þeirri vá sem loft­lags­breyt­ing­ar.

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, setti til að mynda nýjar loft­lags­reglur í síð­ustu viku með ein­hliða ákvörðun emb­ætt­is­ins um að losun koltví­oxíðs út í and­rúms­loftið verði minnkuð um 32 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 2005. Ákvörð­unin hefur mætt þó nokk­urri and­stöðu frá repúblikönum og orku­fyr­ir­tækj­um.

„Við eigum bara eitt heimili. Það er bara ein Jörð. Það er ekkert plan B,“ sagði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, þegar hann kynnti áætlun sína í síðustu viku. „Við erum fyrsta kynslóðin sem finnur fyrir áhrifum hnattrænnar hlýnunar. Við erum síðasta kynslóðin sem getur gert eitthvað í því.“ „Við eigum bara eitt heim­ili. Það er bara ein Jörð. Það er ekk­ert plan B,“ sagði Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, þegar hann kynnti áætlun sína í síð­ustu viku. „Við erum fyrsta kyn­slóðin sem finnur fyrir áhrifum hnatt­rænnar hlýn­un­ar. Við erum síð­asta kyn­slóðin sem getur gert eitt­hvað í því.“

Margir af helstu leið­togum heims­ins hafa fagnað þess­ari áætlun Obama.Francois Hollande, Frakk­lands­for­seti, sagði hug­rekki Obama mikið í að ná þessu í gegn. „Þetta mun hjálpa mikið til þegar kemur að lofts­lags­ráð­stefn­unni í Par­ís,“ sagði hann. Ban Ki-Moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, tók í sama streng. „Áætlun Obama er til fyr­ir­myndar um nauð­syn­lega fram­tíð­ar­sýn sem þarf til að minnka útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá skrif­stofu aðal­rit­ar­ans.

Nýverið til­kynntu íslensk stjórn­völd mark­mið lands­ins í lofts­lags­málum til árs­ins 2030. Íslensk stjórn­völd munu leit­ast við að ná sam­eig­in­legu mark­miði með Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum og Nor­egi um 40 pró­sent minnkun los­unar koltví­oxíðs sé miðað við árið 1990.

Á ráð­stefn­unni í París verður meiri krafa gerð til þró­aðra ríkja en þró­un­ar­ríkja, að því er segir í frétta­til­kynn­ingu umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins síðan í júní. Þar segir einnig af aðferð­inni sem freist­ast verður til að nota. Ólíkt því þegar Kýótó-­sam­komu­lagið var gert, þegar samið var um los­un­ar­mark hvers rík­is, er hverju ríki ætlað að setja sér eigin mark­mið til árs­ins 2030.











Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None