Síminn hagnast um 1,3 milljarða þrátt fyrir samdrátt í sölu - Eigið fé nú 31,2 milljarðar

S--minn_02.jpg
Auglýsing

Sim­inn, stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, hagn­að­ist um 1,3 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015. Tekjur félags­ins dróg­ust hins vegar saman um 4,4 pró­sent á tíma­bil­inu miðað við sama tíma­bil í fyrra. Eigið fé Sím­ans er nú 31,2 millj­arðar króna og hefur auk­ist um 1,3 millj­arða króna frá ára­mót­um. Vaxta­ber­andi skuldir eru 24,8 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 50,7 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna hálfs­árs­upp­gjörs Sím­ans.

Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans, til­kynnti það á Kaup­hall­ar­dögum Arion banka 8. apríl síð­ast­lið­inn að Sím­inn yrði skráður á hluta­bréfa­markað í haust. Arion banki og Arct­ica Fin­ance hafa unnið að und­ir­bún­ingi hluta­fjár­út­boðs vegna skrán­ing­ar­inn­ar. Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Orra að vinna við und­ir­bún­ing skrán­ingar gangi vel og að gert sé ráð fyrir því að Sím­inn verði skráður á markað á fjórða árs­fjórð­ungi.

Sím­inn á og rekur fyr­ir­tæki sem starfa einkum á sviði fjar­skipta og upp­lýs­inga­tækni. Innan sam­stæð­unnar eru eft­ir­talin fyr­ir­tæki: Sím­inn, Míla, Sensa, Staki, On-Wa­ves  Radi­omið­un, Talenta og Sensa DK í Dan­mörku.

Auglýsing

Sala dróst saman



Alls seldi Sím­inn vörur og þjón­ustu fyrir 14,6 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem er um 700 millj­ónum krónum minna en hann gerði á sama tíma­bili í fyrra. Ástæðan er fyrst og fremst sú að tekjur Sím­ans í Dan­mörku voru að hluta til inni í tölum fyrra árs en það fyr­ir­tæki var selt á árinu 2014. Rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði (EBIT­DA) var um fjórir millj­arðar króna, sem er mjög svipað og á fyrri hluta síð­asta árs.

Alls nema heild­ar­eignir Sím­ans 61,5 millj­örðum króna og vaxta­ber­andi skuldir hans eru 24,8 millj­arðar króna, eða um 1,2 millj­örðum krónum lægri en þær voru um mitt ár 2014. Eigið fé e, líkt og áður sagði, 31,2 millj­arðar króna.

Keyptu fimm pró­sent í Sím­anum



Nokkrir stjórn­endur Sím­ans og hópur ann­arra fjár­festa, meðal ann­ars erlendra, keyptu fyrir helgi fimm pró­sent hlut í félag­inu á 1.330 millj­ónir króna. Miðað við það verð er mark­aðsvirði Sím­ans 26,6 millj­arðar króna. Hóp­inn leiðir hol­lenski fjár­festir­inn Bertrand Kan, sem er fyrrum yfir­maður hjá Morgan Stanley. Kan þekkir vel til Sím­ans, en hann stýrði meðal ann­ars sölu­ferli hans árið 2005, þegar Sím­inn var einka­vædd­ur, fyrir hönd Morgan Stanley.

Á meðal ann­arra sem keyptu er Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans, sem keypti sam­tals 0,4 pró­sent hlut fyrir um 106 millj­ónir króna.

Þá vekur athygli að fyrrum for­stjóri eins helsta sam­keppn­is­að­ila Sím­ans, Voda­fone á Íslandi, er á meðal þeirra fjár­festa sem til­heyra hópn­um. Sá heitir Ómar Svav­ars­son og stýrði Voda­fone á Íslandi í fimm ár, eða þar til í maí 2014 þegar honum var sagt upp störf­um. Ómar hafði þá starfað hjá Voda­fone frá árinu 2005.

Eftir söl­una á Arion banki enn 33 pró­sent hlut í Sím­an­um, sem stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins. Stefnt er að því að skrá hluta­bréf Sím­ans í Kaup­höll Íslands í haust og í aðdrag­anda þess áformar Arion banki að minnka enn frekar hlut sinn. Aðrir stórir eig­endur Sím­ans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, þeirra stærstur er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna 13,23 pró­sent hlut.

Menn sem störf­uðu hjá Morgan Stanley og Gold­man Sachs



Fjár­festa­hóp­ur­inn sam­anstendur af fjár­festum frá fimm löndum ásamt nokkrum af stjórn­endum Síma­sam­stæð­unn­ar. Á meðal þeirra er Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans. Aðrir úr stjórn­enda­hópnum sem kaupa eru þeir sem sitja fram­kvæmda­stjórn­ar­fundi Sím­ans (fram­kvæmda­stjórar Sím­ans eru Birna Ósk Ein­ars­dótt­ir, Magnús Ragn­ars­son, Eric Figu­eras og Óskar Hauks­son), fram­kvæmda­stjóri Mílu (Jón Rík­harð Krist­jáns­son) og fram­kvæmda­stjóri Sensa (Val­gerður Hrund Skúla­dótt­ir).

Til við­bótar eru fimm erlendir ein­stak­lingar í fjár­fest­inga­hópn­um. Þeir eru, auk Kan, þeir Joe Ravitch, Adam Samu­els­son, Troels Askerud og Kaj Juul-Ped­er­sen. Hóp­ur­inn kemur úr ýmsum áttum en Ravitch var til að mynda í stjórn­enda­hópi Gold­man Sachs í á annan ára­tug og Juul-Ped­er­sen er fyrrum fram­kvæmda­stjóri hjá Erics­son.

Þá eru þrír íslenskir einka­fjár­festir líka með í hópn­um. Á meðal þeirra er Sig­ur­björn Þor­kels­son, sem starf­aði lengi sem yfir­maður hjá Lehman Brothers, var einn eig­andi Haga og stofn­aði fyrr á þessu ári verð­bréfa­miðl­un­ina Fossa mark­aði með nokkrum fyrrum lyk­il­starfs­mönnum úr Straumi. Hinir íslensku fjár­fest­arnir eru Stefán Áka­son, fyrrum for­stöðu­maður skulda­bréfa­miðl­unar Kaup­þings, og áður­nefndur Ómar Svav­ars­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None