Starfsfólk Símans fær að kaupa í félaginu

siminn-innanhuss.png
Auglýsing

Stjórn Sím­ans leggur til að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins fái tæki­færi til að eign­ast hlutafé í Sím­anum þegar félagið verður skráð á mark­að, eins og stefnt er að í haust. Frá þessu er greint í dag í til­kynn­ingu frá félag­inu, en eins og Kjarn­inn greindi frá hefur hópur erlendra fjár­festa og stjórn­enda Sím­ans keypt fimm pró­sent hlut í félag­inu.

Val­rétt­ar­á­ætl­unin mun ná til allra fast­ráð­inna starfs­manna Sím­ans hf. og dótt­ur­fé­laga ann­arra en Mílu. Starfs­menn munu geta á fimm árum tryggt sér hluta­bréf fyrir allt að sex hund­ruð þús­und krónur árlega.

Til­kynn­ing frá Sím­anum í heild:



„Stjórn Sím­ans leggur til á næsta hlut­hafa­fundi að starfs­menn Sím­ans fái tæki­færi til þess að eign­ast hlut í Sím­anum eftir að hann fer á mark­að. Verði til­lagan sam­þykkt munu starfs­menn Sím­ans geta fest sér hluta­bréf og kosið að inn­leysa þau  að ári eða fram­lengja kaup­rétt­inn til allt að fimm ára.

Auglýsing


„Mark­miðið með val­rétt­ar­á­ætl­un­inni er að sam­þætta hags­muni starfs­manna sam­stæð­unnar við lang­tíma­mark­mið Sím­ans, auka tryggð starfs­fólks og lang­tíma­hugs­un. Gangi félag­inu fjár­hags­lega vel má vænta þess að verð hluta­bréfa hækki og munu starfs­menn­irnir þá njóta þess,“ segir Orri Hauks­son for­stjóri Sím­ans um til­lögu stjórn­ar­inn­ar: „Með fimm ára fyr­ir­komu­lag­inu er girt fyrir áhættu­sækni til skamms tíma. Val­rétt­ur­inn á að auka virði fyr­ir­tæk­is­ins til lengri tíma litið og gera það að eft­ir­sótt­ari fjár­fest­ingu og fram­úr­skar­andi vinnu­stað.“



Val­rétt­ar­á­ætl­unin mun ná til allra fast­ráð­inna starfs­manna Sím­ans hf. og dótt­ur­fé­laga ann­arra en Mílu. Starfs­menn geta á þessum fimm árum tryggt sér bréf fyrir allt að sex hund­ruð þús­und krónur árlega, í sam­ræmi við heim­ild í skatta­lög­um. Starfs­menn Mílu eru und­an­skildir þar sem sam­komu­lag við Sam­keppn­is­eft­ir­litið tryggir rekstr­ar­legt sjálf­stæði Mílu ehf. á allan hátt.



Ragna Mar­grét Norð­da­hl, mannauðs­stjóri Sím­ans, segir til­lögu stjórn­ar­innar spenn­andi fyrir starfs­fólk og áhuga­verða leið til þess að efla það í störfum sínum fyrir Sím­ann. „Val­rétt­ar­á­ætl­unin veitir mögu­leika á kjara­bótum umfram launa­hækk­anir þegar vel gengur og er því mikil hvatn­ing til þess að sjá árangur af  eigin starfi. Starfs­fólk stýrir því sjálft hvernig það nýtir sér þau tæki­færi sem í áætl­un­inni fel­ast. Vilji fólk ekki taka neina áhættu getur það engu að síður notið ávöxt­un­ar.“



Arion banki á stærstan hlut í Sím­anum og til­kynnti fyrr í dag að hann hefði selt um 5% hlut til hóps erlendra og inn­lendra fjár­festa og þar á meðal nokk­urra stjórn­enda Síma­sam­stæð­unn­ar. Hóp­ur­inn er leiddur er af hol­lenska fjár­fest­inum Bertrand Kan en það var Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans sem hafði frum­kvæði að því að setja hóp­inn sam­an.  Eftir söl­una á Arion banki 33% hlut í Sím­an­um. Orri fer með um 0,4% hlut í Sím­anum eftir við­skipt­in.



Stefnt er að því að Síma­sam­stæð­an, sem auk Sím­ans sjálfs sam­anstendur af Mílu, Staka Autom­ation, Rad­íó­mið­un, Talenta, On-Wa­ves og Sensa, fari á markað nú í haust.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None