Frumvarp um að leggja niður Þróunarsamvinnustofnun lagt fram á ný

Gunnar_bragi.jpg
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra leggur í dag fram frum­varp um breyt­ingu á lögum um alþjóð­lega þró­un­ar­sam­vinnu Íslands. Frum­varpið var lagt fram á síð­asta þingi en náði þá ekki fram að ganga. Verði það að lögum mun Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun Íslands (ÞS­SÍ) leggj­ast niður og starf­semi hennar verður færð inn í utan­rík­is­ráðu­neyt­ið. Málið er á dag­skrá þings­ins í dag en þing­fundur hófst klukkan 13:30.

ÞSSÍ hefur frá form­legri stofnun árið 1981 haft yfir­um­sjón með svo­kall­aðri tví­hliða þró­un­ar­að­stoð Íslend­inga, þar sem Ísland er í beinu starf­starfi við ákveðin lönd sem þiggja þró­un­ar­að­stoð. Í dag eru þau lönd Mala­ví, Mósam­bík og Úganda, auk þess sem ÞSSÍ hefur stutt jarð­hita­rann­sóknir á nokkrum stöðum í aust­an­verðri Afr­íku. Marg­hliða þró­un­ar­sam­vinna, þar sem Ísland leggur sitt að mörkum til alþjóða­stofn­anna eins Alþjóða­bank­ans (World Bank) og þró­un­ar­að­stoðar Sam­ein­uðu Þjóð­anna(UNDP) er á for­ræði utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sjálfs.

Auglýsing


Í grein­gar­gerð með frum­varp­inu segir að með því að færa fram­kvæmd þró­un­ar­sam­vinnu­mála á eina hendi sé verið að ein­falda skipu­lag­ið.Betri heild­ar­sýn mun nást yfir mála­flokk­inn og stefnu­mótun verða mark­viss­ari þegar um einn ábyrgð­ar­að­ila er að ræða. Sam­hæf­ing mun eflast, fram­kvæmd verða skil­virk­ari og sam­legð­ar­á­hrif af starfi Íslands á sviði þró­un­ar­sam­vinnu aukast. Þannig má gera ráð fyrir að breyt­ingin stuðli að auknum áhrifum af starfi Íslands og auknum árangri þegar til lengri tíma er lit­ið,“ segir í grein­ar­gerð­inni.



Í bráða­birgða­á­kvæði í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að við færslu starf­semi ÞSSÍ til ráðu­neyt­is­ins verði öllum starfs­mönnum ÞSSÍ boðið starf hjá ráðu­neyt­inu. Þar eru þró­un­ar­verk­efni á ábyrgð svo­kall­aðrar þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofu þar sem níu manns starfa í dag. Í dag eru starfs­menn ÞSSÍ 38 tals­ins; 9 manns á aðal­skrif­stofu í Reykja­vík, 11 í umdæm­is­skrif­stof­unni í Lilongwe í Mala­ví, 6 í umdæm­is­skrif­stof­unni í Mapútó í Mósam­bík og 12 í umdæm­is­skrif­stof­unni í Kampala í Úganda. Í Lilongwe eru 2 starfs­menn útsendir og 9 stað­ar­ráðn­ir, í Mapútó eru 2 starfs­menn útsendir og 4 stað­ar­ráðnir og í Kampala eru 2 starfs­menn útsendir og 10 stað­ar­ráðn­ir.



Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir enn­fremur að málið hafi fengið vand­aða með­ferð og ítar­lega umfjöllun m.a. í utan­rík­is­mála­nefnd á síð­ast­liðnu þingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None