Íslendingar fá að flytja út rúmlega tíu sinnum meira af skyri til Evrópu

15349148838_9a3fc945b8_b.jpg
Auglýsing

Ef nýr samn­ingur Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með land­bún­að, sem um samd­ist í vik­unni, tekur gildi gæti verð á vissum inn­fluttum mat­vörum lækkað um tugi pró­senta. Sam­hliða gild­is­töku samn­ings­ins mun inn­flutn­ings­kvóti Íslend­inga á lamba­kjöti inn á innri markað Evr­ópu, næstum tvö­faldast, fara úr 1.850 tonnum á ári í 3.350 tonn. Íslenskir fram­leið­endur Skyrs fá auk þess að flytja út tíu sinnum meira en áður inn á mark­aði í Evr­ópu­sam­bands­lönd­un­un­um. Í dag mega þeir selja 380 tonn af skyri þar án tolla en það magn fer upp í 4.000 tonn með nýja samn­ingn­um. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. 

Til­kynnt var um það á fimmtu­dag að nýir ­samn­ingar Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með land­bún­að­ar­vörur hefðu náðst á samn­inga­fundi sem staðið hafði í tvo daga í Reykja­vík. í til­kynn­ingu sagði að "samn­ing­arnir munu stuðla að auknu vöru­úr­vali og lægra vöru­verði á Íslandi til hags­bóta fyrir neyt­end­ur. Jafn­framt fela samn­ing­arnir í sér veru­leg ný tæki­færi fyrir útflytj­end­ur." Vonir standa til að samn­ing­arnir geti tekið gildi í árs­lok 2016 eða byrjun árs 2017, að feng­inni stað­fest­ingu stofn­ana ESB og Íslands.

Kjúklinga­bændur ásaka stjórn­völd um "bak­tjald­ar­makk"



Þar er meðal ann­ars rætt við Sindra Sig­ur­geirs­son, for­mann Bænda­sam­tak­anna, sem segir jákvætt að fá auk­inn aðgang að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins. Þó sé ljóst að staðan verði erfið fyrir sumar búgrein­ar, meðal ann­ars ali­fugla- og svína­rækt. Kvótar á inn­flutn­ing kjúklinga um nán­ast fjór­fald­ast með nýja sam­komu­lag­inu auk þess sem heim­ilt verður að flytja inn 200 tonn af líf­rænum alífugl­um, en inn­flutn­ingur á þeim er óheim­ill í dag. Þá mun íslenskum inn­flytj­endum vera heim­ilt að flytja inn sjö sinnum meira nauta­kjöt en þeir gera í dag og 3,5 sinnum meira svína­kjöt. Auk þess verða heim­ildir til að flytja inn osta stór­aukn­ar.

Ingi­mundur Berg­mann, for­maður Félags kjúklinga­bænda, gagn­rýnir vinnu­brögð stjórn­valda harð­lega í sam­tali við blað­ið. "Þetta er bak­tjalda­makk. Það var látið í veðri vaka við okkur að þetta væri í und­ir­bún­ingi og hugs­an­lega inni í mynd­inni, ekki að málið væri komið á þetta stig."

Auglýsing

Versl­unin sátt en vill meira



Tals­menn versl­un­ar­innar á Íslandi eru hins vegar mun kát­ari með breyt­ing­arn­ar.  Finnur Árna­son, for­stjóri Haga, segir breyt­ing­arnar frá­bærar fréttir fyrir neyt­endur og versl­un­ina. Þær geti lækkað verð á ákveðnum vöru­teg­undum um tugi pró­senta. En eigi þó eftir að taka  mjög stór skref í þessum efn­um. "Okkur sýn­ist sem breyt­ing­arnar nái ekki til allra unn­inna land­bún­að­ar­vara. Sam­kvæmt mínum upp­lýs­ingum hafa breyt­ing­arnar þannig ekki áhrif á skinku, parmesa­nost og pylsur almennt, svo dæmi sé tek­ið. Þetta eru ef til vill minni breyt­ingar en vænt­ingar stóðu til varð­andi unnar land­bún­að­ar­vör­ur."

Gæti aukið verð­bólgu



Ingólfur H. Bend­er, for­stöðu­maður Grein­ingar Íslands­banka, segir að óljóst sé hversu mikið verð á mat­vöru muni lækka. Afnám tolla, sem sé lækkun óbeinna skatta, leiði til lægra verðs og auki kaup­mátt. Aðgerðið sé hins vegar einnig eft­ir­spurn­ar­hvetj­andi fyrir hag­kerf­ið, ef ekki komi til mót­væg­is­að­gerðir af hálfu stjórn­valda. "Án mót­væg­is­að­gerða hefur þetta þannig þenslu­á­hrif fyrir hag­kerfið á tímum þegar spenna er í kerf­inu. Þau áhrif eru til að auka verð­bólg­una."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None