Junker: Evrópa bregst við flóttamannavandanum - 160 þúsund manns flytjast innan álfunnar

junckernota.jpg
Auglýsing

Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins (ES­B), kynnti í morgun við­bragðs­á­ætlun við straumi flótta­manna til Evr­ópu. Áætl­unin gerir ráð fyrir að 120 þús­und hæl­is­leit­endur flytj­ist frá Grikk­landi, Ítalíu og Ung­verja­landi til ann­arra ríkja ESB. Af þessum fjölda hæl­is­leit­enda tekur Þýska­land við um 31 þús­und, Frakk­land við um 24 þús­und manns og Spánn við um 15 þús­und manns.

Áður höfðu sam­bands­ríkin sam­þykkt kvóta sem gerði ráð fyrir að flytja um 40 þús­und hæl­is­leit­endur frá Grikk­landi og Ítalíu til ann­arra Evr­ópu­ríkja. Ný áætlun fram­kvæmda­stjórnar ESB tekur þannig alls til 160 þús­und hæl­is­leit­enda í lönd­unum tveimur auk Ung­verja­lands. Junker hvatti þjóðir sam­bands­ins til að gang­ast við settum kvót­um. Hér að neðan má sjá hvernig kvóti dreif­ist milli land­anna, sam­kvæmt áætlun fram­kvæmda­stjórn­ar­inn­ar.



Í árlegri stefnu­ræðu sinni fyrir Evr­ópu­þing­inu í morgun við­ur­kenndi Junker að fyrri áætlun ESB, um að lönd taki við alls 40 þús­und hæl­is­leit­end­um, sé úrelt og dugi skammt. Hann sagði Evr­ópu vera í huga flótta­manna staður vonar og að það sé eitt­hvað sem Evr­ópu­búar eigi að vera stoltir af en ekki ótta­slegnir yfir. Þrátt fyrir mörg deilu­mál þá sé Evr­ópa stöðug­asti og rík­asti staður heims. Evr­ópa verði að hjálpa þeim sem flýji í dag stríð. Junker benti á að í dag telji flótta­fólk aðeins 0,11 pró­sent íbúa Evr­ópu.

„Merkel“ ­trufl­aði Junker



Heldur óvenju­legur atburður átti sér stað á Evr­ópu­þing­inu í morgun þegar ítalski þing­mað­ur­inn Gianluca Buon­anno reis úr sæti sínu, með and­lits­grímu af Ang­elu Merkel, kansl­ara Þýska­land, og tók í hend­ina á Junker. Í umfjöllun Mas­hable um atvikið þá liggur ekki fyrir hvað Evr­ópu­þing­mann­inum gekk nákvæm­lega til en það vakti nokkra kátínu í þing­sal. Mynd­band af atvik­inu má sjá hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None